www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


laugardagur 30. september

Ég viðurkenni að ég var ekki alveg búin að gefa upp alla von með FC - enda er ég ekkert að grínast með að hann hefði verið algjörlega fullkominn í hlutverkið. Það tók mig ca sólarhring að átta mig á því að nei.. hann myndi líklega ekki gera þetta og það myndi ekki þýða að ganga á eftir honum. Ég birti færsluna "Nope" þennan laugardag.

Huga fannst þetta svo brilliant hugmynd með Ken að hann hvatti mig áfram, sagði að ég hlyti að finna einhvern sem væri til í þetta. Hann var að reyna að finna einhverja stráka til að leika henchmen en gekk illa. Mig langaði að gera lógó fyrir bolina en var algjörlega hugmyndasnauð og hafði ekki tíma til að sitja og pæla í hvernig það átti að vera. Vildi svo heppilega til að mér datt í hug að nota refrence í Austin Powers og hafa lógó fyrirtækisins hákarl sem hefur laser á hausnum svo ég fór að vinna í lógóinu.




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web