
Þennan þriðjudag var ég stödd í andyrinu í vesturbæjarlauginni þegar ég hitti mann sem ég þekki en ekki nóg til að honum hafi verið boðið á grímuballið.
Ég sagði honum í mjög stuttu máli hvað ég væri að reyna að gera og spurði hvort hann þekkti einhvern breta sem væri kannski til í að taka að sér að gera þetta. Hann glotti og sagði að hann gæti mögulega þekkt einn. Ég gaf honum númerið mitt og bað hann endilega að tékka á málinu fyrir mig.
Ég var mjög spennt að sjá hvað kæmi útúr þessu, bloggaði færslu sem heitir "Victory shall yet be mine" þar sem ég rifja upp orðin sem Dr. Evil gerði ódauðleg í myndinni um Austin Powers:
You know, I have one simple request, and that is to have sharks with frickin' laser beams attached to their heads! Now, evidently, my cycloptic colleague informs me that that can't be done. Can you remind me what I pay you people for?
Honestly. Throw me a bone here.
Ég var mjög langt komin með lógóið fyrir WDC, það eina sem vantaði þarna var kjörorð.