www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


miðvikudagur 4. október

Maðurinn í sundlauginni hringdi í mig um miðjan dag og gaf mér upp símanúmer sem ég hringdi í. Þá kom í ljós að umræddur maður yrði staddur erlendis þann 14. október svo ekki gat hann tekið þetta að sér. Rassgat sem það var því hann nær röddinni hans Sean Connery - kid you not. Hann sagðist samt þekkja mann sem væri mögulega hægt að fá í þetta og sagðist myndi hringja í mig með númerið hans.

Um kvöldið birti ég á blogginu lógó World Domination Corp sem ég hafði verið að búa til undanfarna daga. Kjörorð fyrirtækisins: "Our official language is money" - sem mér fannst viðeigandi.

Á þessum tímapunkti stóð til að láta prenta lógóið framaná henchman bolina en þegar ég komst að því hvað kostar að láta prenta á boli í svona mörgum litum (3), hætti ég snarlega við og hafði bara nafn fyrirtækisins og netfang:

wdctshirt.png

Þrátt fyrir það eru þetta einir dýrustu bolir sem ég hef á ævinni keypt - en hverrar krónu virði.

Í færslunni með lógóinu gaf ég í skyn að ég væri búin að landa sponsor fyrir afmælið, enda var það hluti af leikritinu, að allt væri í boði World Domination Corp. Okkur Huga datt líka í hug að setja upp heimasíðu fyrir WDC, en ég var ekki viss um að ég hefði tíma til að setja hana upp - hvað þá skrifa hana.




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web