www.anna.is
Anna Helgadóttir
The things I do
ravings song movie jokes cv guestbook
Vefirnir

Stýri í dag uppbyggingu vefsvæða Marel Food Systems og markaðssetningu fyrirtækisins á netinu.

Er hætt að taka að mér sérverkefni í bili.

Skoða CV


anna2006.gifwww.anna.is - opnaði fyrst í september 2000 og hefur farið í gegnum mörg útlit með árunum. Síðast breytti ég síðunni í byrjun 2006.





www.badabing.is - þessi síða var fyrst sett upp árið 2000 og hefur, eins og anna.is, breyst heilmikið í útliti í gegnum tíðina. badabing.is er síða Þórarinns Þórarinssonar, blaðamanns þar sem hann bloggar og heldur utanum öll sín skrif.

www.galdradukkur.is - opnaði 2003.
Á þessari síðu held ég utanum Galdradúkkurnar mínar sem ég hanna og framleiði. Hugmyndin varð til útfrá verkefni sem ég vann fyrir ISNIC og einaðist sjálfstætt líf.




www.sifjar.is - opnaði í nóvember 2005.
Bergljót Davíðsdóttir ræktar Cavalier hunda og sá um "Begga og dýrin" í DV. Hún vildi fá einfalt útlit á síðuna og lagði mesta áherslu á að það væri auðvelt að nota hana.

www.johanna.is - Opnaði í janúar 2006.
Þessi heimasíða var fyrir kosningabaráttu Jóhönnu Thorsteinson í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hún bauð sig fram í 2. sætið. Síðan var tímabundið á netinu. Þú getur smellt á myndina til að sjá hvernig síðan leit út.

www.englakot.is - opnaði í mars 2006.
Ásdís Bjarnadóttir hafði samband við mig í byrjun árs 2006 og bað mig um að gera heimasíðu sem væri hlýleg og kvenleg. Hún er að rækta Papillon hunda undir ræktunarnafninu Englakot og ég fékk að fylgjast með fjórum yndislegum hvolpum sem fæddust í desember árið 2005.

www.icelandguide.is - opnaði í júní 2006.
Lára Hanna Einarsdóttir leiðsögumaður hafði samband við mig því hana langaði að setja upp síðu þar sem leiðsögumenn gætu skráð sig til að auðvelda erlendum aðilum að finna leiðsögumann.

worlddomcorp.com - opnaði í október 2006.
Þetta var hluti af stærra verkefni sem endaði sem samstarfsverkefni við Brimborg. Það er ekki vitað um framtíð síðunnar og hvort ég hef tíma til að viðhalda henni efnislega.

steinsteypufelag.is - opnaði í október 2006.
Formaður Steinsteypufélagsins var ekki sáttur við síðu félagsins, hafði samband við mig og vildi fá mjög einfalda síðu sem auðvelt væri að uppfæra. Ég sá um að taka allt efnið af gömlu síðunni og setja upp á þeirri nýju.

www.felagid-audur.is - opnaði í nóvember 2006.
Mitt fyrsta verk sem formaður í félaginu Auður var að setja upp nýja heimasíðu fyrir félagið. Gamla síðan var í mjög þungu kerfi sem var óstabílt og erfitt að uppfæra enda hafði ekki verið sett inn nýtt efni á síðuna í marga mánuði.


www.nornabudin.is - opnaði í nóvenber 2006.
Nornabúðin var með heimasíðu fyrir en ekki í kerfi svo það var töluvert vesen fyrir eigandan að uppfæra síðuna. Ég endurhannaði síðuna og setti upp í kerfi svo nú er ekkert mál að uppfæra.




The Things I Do
Þróun vefja

links
blogs
links - web