vikan 29. september 2003 - 5. október 2003
Þegar ég var skiptinemi í USA kynntist ég einni bestu vinkonu sem ég hef átt, Julie. Hún var dóttir fólksins sem ég bjó hjá.
Fyrsta daginn minn hjá fjölskyldunni leið mér eins og ég hefði alltaf búið þar og ég og Julie "hit it right off". Að mörgu leyti vorum við eins og svart og hvítt. Literally reyndar þar sem hún var strípu-ljóshærð með blá augu og ég dökkhærð með brún augu. Hún var hávaxin ég lágvaxin. Hún reykti marijuana og Marlboro, ég drakk vodka og reykti Winston. Ég fílaði Wham og Duran Duran. Hún fílaði AC/DC.
Hún var dásamleg. Eina íslenska lagið sem ég flutti með mér á kasettu var "Reyndu aftur" með Pálma Gunnars og ég kenndi henni að syngja það. Hún hljómaði eins og retard þegar hún bar fram íslenskuna og við hlógum að því saman. Alveg eins og við hlógum þegar ég pantaði eyðimörk í staðinn fyrir eftirrétt á matsölustað stuttu síðar. Reyndi líka að kaupa teiknimynd af sígarettum út í sjoppu...
Við stefndum í sitthvora áttina. Julie vildi vera rík og fræg. Ég vildi eitthvað allt annað. Ég veit ekki hvað það var sem gerði okkur eins nánar og raun bar vitni en eitthvað var það og við vissum að við myndum hittast aftur, miðaldra kerlingar, og tala saman um hvað á daga okkar hafði drifið í gegnum árin yfir screwdriver og joint.
Einu sinni sem oftar sátum við á rúminu hennar að kjafta og hún spurði: "Anna, why aren't we real sisters?" og ég svaraði: "I dunno, guess god fuck'd up". Julie svaraði: "God is a goof. He doesn't know what the fuck he's doin".
Eftir að ég fór heim til Íslands hringdumst við stundum á og kjöftuðum saman eins og "í gamla daga". Það skipti ekki máli hversu mikill tími leið á milli þessara símtala.. það var alltaf eins og við hefðum síðast hist í gær.
Fyrir tveimur árum síðan var ég að hakka fisk í fiskibollur. Öll útötuð í fiskhakki heyrði ég þegar nýr tölvupóstur kom í inboxið mitt. Þegar ég sá að hann var frá "pabba" í USA þurrkaði ég mér í svuntuna og settist niður til að lesa. Ég opnaði póstinn og las hann fimm sinnum. Svo fór ég að gráta.
Hann var að senda mér fréttir sem ekkert foreldri ætti að þurfa að senda frá sér. Julie er dáin. Rúmlega þrítug. Átti þriggja mánaða gamlan dreng. Í póstunum voru síðustu myndirnar sem teknar voru af Julie. Það voru líka myndir af litla drengnum hennar.
Eitt það erfiðasta sem ég hef gert um ævina var að kveðja Julie þegar ég fór heim til Íslands. Minnir mig á random atriði úr hvaða bíómynd sem er þegar tveir vinir vilja segja hvorum öðrum hvað þeir skipta hvorn annann miklu máli og þeir bara koma ekki orðum að því. Við föðmuðumst og héldum fast hvor um aðra og þegar við loksins slepptum takinu fórum við að hlæja með tárin í augunum. Því við vissum báðar að við myndum hittast aftur. Það átti ekki eftir að verða þannig.
Þegar Julie var búin að kenna mér að fíla AC/DC fannst mér rétt að ég kenndi henni að fíla WHAM. Af einhverjum furðulegum ástæðum tók hún ástfóstri við lagið Wham Rap.
Julie, I found out what DHSS means:
"Department of Health and and Social Security."
God is a goof. He doesn't know what the fuck he's doing.
» Wham Rap, Enjoy What You Do - Wham «
Wham bam
I am a man
Job or no job
you can't tell me that I'm not
Do you enjoy what you do
If not just stop
don't stay there and rot
Uhh
You got soul
You got soul
I said-a get, get, get on down
I said-a get, get, get on down
I said-a get, get, get on down
I said-a get, get, get on down
Hey everybody take a look at me
I've got street credibility
I may not have a job but I have a good time
With the boys that I meet down on the line
I said: I don't need you
So you don't improve,
Well, who asked you to?
Hey-a
Hey jerk, you work
This boy's got better things to do
HELL
I ain't never gonna work, get down in the dirt
I choose, to cruise
Gonna live my life, sharp as a knife
I've found my groove and I just can't lose
I'm style from head to toe
Cool cat flash gonna let you know
I'm a soul boy - I'm a dole boy
Take pleasure in leisure, I believe in joy!
Wham bam - I am a man
Job or no job
You can't tell me that I'm not. . . .
Do you enjoy what you do
If not, just stop
Don't stay there and rot
Party nights, and neon lights
We hit the floors, we hit the heights
Dancing shoes, and pretty girls
Boys in leather kiss girls in pearls
Hot - damn! Everybody, let's play
So they promised you a good job - NO WAY!
One, two, three, rap
C'mon everybody, don't need this crap
Wham bam - I am a man
Job or no job
You can't tell me that I'm not. . . .
Do you enjoy what you do
If not, just stop
Don't stay there and rot
If you're a pub man
Or a club man
Maybe a jet black guy with a hip HI-FI
White cool cat with a trilby hat
Maybe leather and studs is where you're at
Make the most of every day
Don't let hard times stand in your way
Give a wham give a bam
But don't give a damn
'cos the benefit gang are gonna pay.
Now reach up high and touch your soul
The boys from Wham
Will help you reach that goal
It's gonna break your mama's heart
(so sad)
It's gonna break your daddy's heart
(too bad)
But you'll throw the dice and take my advice
'cos I know that you're smart
Can you dig this thing? - YEAH!
Are you gonna get down? - YEAH!
Say wham - WHAM!
Say bam - BAM!
Wham bam - I am a man
Job or no job
You can't tell me that I'm not. . . .
Do you enjoy what you do
If not, just stop
Don't stay there and rot
(DHSS) Wham bam - I am a man
Job or no job
You can't tell me that I'm not. . . .
(DHSS) Do you enjoy what you do
If not, just stop
Don't stay there and rot
(DHSS) Wham bam - I am a man
(DHSS) Job or no job
You can't tell me that I'm not. . . .
(DHSS) Do you enjoy what you do
(DHSS) If not, just stop
Don't stay there and rot
Do you want to work - NO!
Are you gonna have fun - YES!
Do you wanna be a jerk - NO!
Are you gonna stay young - YES!
Everybody say Wham - WHAM!
Say bam - BAM!
Everybody say Wham - WHAM!
Say Wham bam - WHAM BAM!
Can you dig this thing - can you dig this thing
Are you gonna get down - down down
Say one, two, three rap
C'mon everybody don't need this crap
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Everybody say Wham - WHAM!
Say bam - BAM!
Everybody say Wham - WHAM!
Say Wham bam - WHAM BAM!
(DHSS) Enjoy what you do
Enjoy what you do
(DHSS) Enjoy what you do
Enjoy what you do
(DHSS) Enjoy what you do
Enjoy what you do
(DHSS) Enjoy what you do
Enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do, enjoy what you do
Enjoy what you do
what you do
what you do
what you do
what you do
what you do