Í Króatíu - flutt á rás eitt 21. júní 2005
Hlusta á - Í Króatíu - mp3 4,40 MB
Ég er nýkomin frá Króatíu.
Nálægt hótelinu sem við bjuggum á var gamalt þorp þar sem maður fann kaupfélag af gömlu gerðinni, klassísk sölutjöld með túrista drasli og eldgömul hús við götur sem voru lagðar þegar rómarveldi var uppá sitt besta.
Ég var að ganga eftir einni slíkri götu daginn áður en ég fór heim þegar ég ákvað að fá mér sæti vegna þess að skórnir sem ég var í voru gjörsamlega að drepa mig. Háhælaðir sandalar sem ég hafði keypt á slikk. Á sama augnabliki og ég fékk mér sæti kom fugl og skeit á mig. Án gríns, það skeit á mig fugl. Nema hvað að rétt í því sem fuglinn lét vaða sá ég konu sitja í stól við eitt húsið. Það skrítna er.. ég hefði getað svarið fyrir það að hún var ekki þarna áður en fuglinn skeit á mig.
Léttari - flutt á rás eitt 14. júní 2005
Hlusta á - Léttari - mp3 5,12 MB
Ég hef verið að léttast undanfarið ár. Sem mér finnst skrítið.. hélt að ég væri komin af léttasta skeiði.. svona getur lífið komið manni á óvart.
Fólk sem ég umgengst í vinnunni er farið að hafa orð á þessu. Margir spyrja mig hvað leyndarmálið sé. Er það herbalife? Hollywoodkúrinn? Svelti? Nei ég lýg því.. ég hef ekki fengið anorexíuspurninguna ennþá.. en fólk spyr og ég hef gefið þeim sama svarið hingað til... Það fara minnst sjö kíló við það að standa í hjónaskilnaði. En það eru farin helmingi fleiri en sjö.. og ég er ekki á herbalife. Hef einu sinni prufað herbalife te og fékk lítið út úr því annað en ofvirkni og einbeitingarskort, í þessa þrjá daga. Held ég hafi aldrei byrjað á jafn mörgu og hætt við fyrr á ævinni.. ljóta vitleysan.
|
|
 |
 |
Þvottavélar - flutt á rás eitt 07. júní 2005
Hlusta á - Þvottavélar - mp3 4,48 MB
Þegar fólk spyr mig hvort ég sé hrædd við eitthvað þarf ég ekki að hugsa mig lengi um áður en ég svara. Ég er sjúklega hrædd við þvottavélar.
Ekki það.. ég get alveg notað þvottavélar og ég get alveg sofið þó það sé þvottavél í íbúðinni, svo líklega er ekki alveg rétt að segja að ég sé hrædd við þvottavélarnar sjálfar, enda líta þær svosem sjaldnast eitthvað ógnvænlega út, en þegar þvottavél er í gangi er ég í krónísku kvíðakasti og líður eins og eitthvað hræðilegt sé yfirvofandi. Enda er í raun eitthvað hræðilegt yfirvofandi... fyrr eða síðar kemur að því að þvottavélin fari að vinda.
|
|
 |
 |
Mamma - flutt á rás eitt 28. ágúst 2004
Hlusta á - Mamma - mp3 22.2 MB
Um daginn lagðist ég í pest, byrjaði á að næla mér í víruskvef sem varð að eyrnabólgu og kinnholusýkingu. Þetta var um svipað leyti og hitabylgja reið yfir ísland sem staðfestir það sem ég hef alltaf sagt; ég sé með eindæmum óheppin manneskja. Til dæmis var mér úthlutað alveg handónýtri mömmu við fæðingu, eða það hélt ég allavega.
Frí - flutt á rás eitt 10. júlí 2004
Hlusta á - Frí - mp3 9,25 MB
Að fara til sólarlanda er eitthvað sem mig hefur aldrei langað neitt sérstaklega til að gera, aðallega vegna þess að ég er ekkert hrifin af því að liggja í sólbaði. Hef reyndar ekki stundað sólböð mikið á þessu landi sem býður upp á haust nánast allan ársins hring. En í þessi fáu skipti sem sólin hefur látið sjá sig á íslandi hef ég ekki fundið hjá mér þörf fyrir að fara í sund, eða út að ganga. Þetta er vítahringur. Ég lít svo illa út í dagsbirtu og til að breyta því þyrfti ég að eyða meiri tíma undir beru lofti til að líta út fyrir að vera eitthvað sem hefur púls. Húðin á mér er venjulega grá glær, föl.. svona út í ólívu græn og ég er oftast þreytuleg af krónísku svefnleysi.