
Flest dótið sem við áttum var keypt fyrir svona peninga. Þessir þarna til hægri voru sjaldséðir, ekki allir sem gátu krækt í svona svimandi upphæðir - ég er ekki viss um að ég hafi haldið á fimmþúsundkalli af þessum tagi - ever.
(Mér finnst gömlu peningarnir miklu flottari en þessir nýju.)

Hér eru þrír seðlar sem var breytt í mynt, og aurar sem urðu gjörsamlega verðlausir, tók því ekki að hafa þá í umferð.
Hvað gerist næst?
Verður myntin: þúsundkall, fimmþúsundkall og tíuþúsundkall? Seðlarnir fimmtíuþúsundkall, hundraðþúsundkall og tvöhundruðþúsundkall? -til minningar um núverandi tvöþúsundkall sem er til í tonnum í einhverjum geymslum í Seðlabankanum.

Ég held að það hafi allar stelpur átt svona litla monsu og "Hello Kitty" dót, sem fékkst í Tokyo búðinni. Það hús lifði ekki af..
Ég átti líka monsu kanínu.

Rubik's cube er fyrirbæri þú hentir örugglega oftar en einu sinni í gólfið rauð/ur af bræði.
Sumir áttuðu sig á því að þetta er í raun dulbúið þroskaleikfang ætlað til að kenna börnum að plokka límmiða af og líma á aftur þannig að þetta passar allt saman.
(varist svona teninga sem seldir eru í búðum í dag, það eru ekki límmiðar á þeim svo þetta eru tóm leiðindi.)

Þennan þarf nú ekkert að kynna sérstaklega.
Ógeðsleg töff dót fyrir börn sem áttu ríka afa.

Merlin og Simon voru gjörsamlega frábærar "leikjatölvur".

Það var engin maður með mönnum nema hann ætti SLÍM.
Ófáir playmokallar sem börðust hetjulega áður en þeir hlutu ægilegan dauðdaga þegar þeir drukknuðu í svona slími.

Alvöru 3-D myndir úr uppáhalds bíómyndunum. Samt man ég ekki eftir að ég hafi sagt setningu eins og "vá, hvenær kemur þessi mynd út í kíki?" Þetta apparat er tær snilld.

Svona dót er náttúrlega algjör snilld. Rétt'upp hönd sem prufaði að láta þetta "ganga" niður stiga!
(as advertised)

Ef vel ætti að vera þyrfti Star Wars náttúrulega að eiga eigin síðu. Þetta dót varð rosalega vinsælt og aðallega hjá karlkyns X kynslóðinni. Ég átti ekkert Star Wars dót sjálf en ég er að bæta mér það upp núna big time. Hvern hefði grunað að þetta myndi lifa í friggin tuttugu ár!

Strumparnir voru voða vinsælir, aðallega hjá stelpunum.
Kannski er það nú ekki svo skrítið. Ein strumpastelpa - 568 strumpastrákar.
Getur ekki tapað.

Það hafa víst ófáir klukkutímarnir fokið í þetta tölvuspil. Þetta er classic.
Kíktu hér ef þú vilt spila Donkey Kong II online

Ég hef aldrei alveg skilið af hverju menn eru að föndra við að klóna rollur og annan búfénað þegar þeir eiga að vera að einbeita sér að því að búa til einn svona ALVÖRU. Mig langar í svona krútt.
Ætlast til þess að hann sé hafður hypoallergenic. Lágmarks krafa.

Fast and the furious hvað?
Ég varð græn úr öfund þegar bróðir minn fékk Aurora AFX bílabraut í jólagjöf. Djöfull langaði mig að eignast svona dót. Ógeðslega gaman að leika sér að þessu og ég man að pabba fannst bara ekkert leiðinlegt að "hjálpa" okkur að setja þetta saman. hehehe

Playmobil ætti líka að hafa sér síðu. Okkur fannst þetta æðislegt dót þó það væri ekki jafn detailed og það er í dag. Konurnar virtust allar vera ófrískar með hárið í hnút að aftan og kallarnir með broddaklippingu.
Ég er ennþá að bíða eftir playmo dverg. Og höll með flottum pyntingarklefa.
Nei bara.

Fisher Price dótið entist og entist og entist..

Okkar kynslóð fékk sinn hluta af Barbie kökunni. Við skulum ekki gleyma "great shape" Barbie, og "great shape" Ken sem voru svakalega vinsæl, enda myndband Jane Fonda "Workout" í algleymi. Einnig var hægt að fá "sport and shave ken" sem var hallæris-gæi með alvöru nylon hár sem stóð undantekningarlaust út í allar áttir, það var ekki nokkur leið til þess að laga á honum hárið svo hann var yfirleitt hippi, geðveikur glæpamaður eða róni í leikjum hjá mér.
Að lokum er hér mynd af dúkku sem ég vissi ekki að væri til. Icelandic Barbie.

Svo var það líka hún Sindy, sem var í harðri samkeppni við Barbie. Hún var ekki sama "megabeibið og Barbie í vexti, leit meira út eins og human being, en hún átti rosa flott húsgögn. Hún tapaði náttúrulega... enda ekki hægt að kaupa "sport and shave" kall fyrir hana.
Lesbía.

Master mind var fundið upp 197? og fór sigurför um heiminn.

Við fengum æði fyrir ýmsu eins og húla gjörðum.
Börn iðnaðarmanna voru rosalega vinsæl þar sem hægt var að búa til svona fyrirbæri úr rafmagnsrörum.
Held að Silvía Nótt hafi náð að gera þetta vinsælt aftur, enda er þetta alveg ógeðslega töff.

Það var líka ógeðslega töff að kunna að gera allskonar með jó-jó og frisbee diskar urðu mjög vinsælir.

Allir strákarnir voru með svona Garfield dúkku í bílnum sínum - líklega til að sýna stelpunum hvað þeir eru ógeðslega töff.

Hver man ekki eftir þessum elskum?
Atari, Commodore 64, Nintendo NES og Sinclair Spectrum.

Ef þetta er ekki nostalgía..

Þetta er allt að koma aftur..