www.anna.is/party
Í kvöld klukkan átta!
ravings song movie jokes guestbook ruv universe
Since 1971

29. ágúst, 1971.

Síðan ég fæddist hefur margt drifið á daga mína. Ég lærði að ganga og tala, gekk bara vel í lífinu framanaf þannig lagað, tók tennur og svona. Lærði að hjóla. Eignaðist kærasta í fyrsta skiptið, varð ástfangin í fyrsta skiptið, eignaðist fyrsta barnið mitt, gifti mig í fyrsta skipti, skildi í fyrsta skipti og bjó ein í fyrsta skiptið. Fór í skóla og lærði að sauma, fór í annan skóla og lærði markaðsfræði, í öðrum skóla lærði ég um DNS og BIND, og í enn öðrum lærði html og CSS. Ég lærði líka um hryllingsbókmenntir, greiningu ljóða og grótesku í bókmenntum.

Ef ég hefði vitað brotabrot af því sem ég veit í dag hefði svo margt farið öðruvísi - en ekkert endilega betur.

Hélt ég að þetta yrði nákvæmlega svona?
Já - en ég var náttúrlega mjög depressed barn.

Þegar ég var unglingur, var Duran Duran vinsæl hljómsveit, strákar voru með sítt að aftan, stelpur með grifflur, í kúkabuxum og með túberað hár. Leikkonur með krónískan fýlusvip eins og Molly Ringwald voru "the shit" og eins og alltaf var nóg úrval af súkkulaði strákum í bíó fyrir stelpurnar að dreyma um.

Árið 2006 er ég búin að draga andann í heil 35 ár, sem verður að teljast til stórtíðinda, þar sem ég reiknaði aldrei með að verða svona langlíf.. með alla þessa kjarnorku í heiminum, kalda stríðið, eyðni og allt það.

Af þessu tilefni mun ég halda partý þann 14. október næstkomandi, and "party like it's 1999" - eins og var gert árið 1988, nema eins og síðast þegar ég hélt uppá afmælið mitt verður þetta grímuball.

Lesendur anna.is, vinir, ættingjar og guðdómlega fallegir karlmenn eru velkomnir á svæðið. Ég er búin að leigja efri hæðina á Sólon fyrir giggið og staðurinn opnar klukkan átta. Eins og síðast verður bjór og snakk on the house en þeir sem vilja drekka annað geta nýtt sér tilboð á barnum. Ég geri engar sérstakar kröfur um hversu pródúseraður búningurinn er, ef þú vilt geturðu komið í jogginggalla og haldið því fram að þú sért "lúði". Það kaupa það allir. Það eina sem þarf til að fá inngöngu er að vera í búningi. Þetta kvöld geturðu verið hver sem er.

Eins og síðast er ég búin að setja upp síðu fyrir ykkur sem viljið rifja upp hvernig það var að vera ungur í the 80's. Það eru linkar á búningasíður fyrir þá sem hafa ekki hugmynd um hvernig þeir eiga að vera.

Að lokum.

Ég hlakka satt að segja ekkert smá til að hitta ykkur. [big smile]


-Anna v. 35.0

Ef þú vilt komast í instant nostalgíufíling eru hér tveir hljóðfælar sem ættu að hjálpa. þetta er smá getraun á mp3 formi (verður að vista því á diskinn). Hvaða sjónvarpsþættir eru þetta? - og hérna er lag sem mér finnst alltaf hressandi að hlusta á (allavega þessi tvö skipti).

Enjoy.

--

Ef þú ert að kommenta og færð villu, þá ætti kommentið samt að skila sér.


comments

Prúðuleikararnir!

Nr. 1 | posted by: Gestur | 14.08.2006 | 22:43:02 | [+] |

Jebb.. þeir eru fyrstir. En hvað kemur svo? wink

Nr. 2 | posted by: anna | 15.08.2006 | 0:21:12 | [+] |

Súpermario bros, þetta var eini tölvuleikurinn sem Alexander nennti að leika sér í þegar hann var lítill. Hann var svo skrýtinn krakki... tók bara tölvudellu í nokkra mánuði... spilaði Súper Maríó og svo var það búið smile

And I am SO coming to your party! colgate Hlakka til!

Nr. 3 | posted by: Sigga | 15.08.2006 | 0:32:37 | [+] |

Fljótfærni er þetta alltaf í manni. Taka tvö.
Prúðuleikararnir
Hill Street Blues
Löður
Óvænt endalok (uppáhalds)
Derrick (Við elskum Harry "litla" Klein)
Get ekki munað
Ekki heldur...
Matlock
Morðgáta
Taggart (líka uppáhalds)
Dynasty - held ég
Dallas
PS. Þetta var gaman. I slept through the whole thing.

Nr. 4 | posted by: Gestur | 15.08.2006 | 2:31:30 | [+] |

Var thetta sjounda ekki eitthvert spítaladrama?

Nr. 5 | posted by: Atviksorda-Anna | 15.08.2006 | 10:40:22 | [+] |

Mitt 80's flassbakk. Ég í Villta Tryllta Villa að þykjast vera 18 ára í rauðri stórri satín blússu með axlapúðum og RISA stórt belti um mig miðja, hvítir 10 sm háir hælar, brúnka dauðans, túperað hár í vængi, hvítur varalitur, fjólublár kinnalitur er það eina sem ég man.....ég dey.

Ég mana annars einhvern til að mæta sem jólakaka á grímuballið - berassaður með rúsínu í naflanum. colgate

Nr. 6 | posted by: Lindablinda | 15.08.2006 | 10:45:55 | [+] |

Ég aetla ad maeta eins og vegakort...berrossud med aedahnúta út um allt. Raudu bólurnar eru Botnsskáli annars vegar og Eden hins vegar.

Ad odru. Ég er komin med hardsperrur í magavodvann eftir lestur á sídunni "Mér misheyrdist". Ég meina t.d. "If you wanna leave, take a cab" med Stevie Wonder, "We're heading for penis" med Europe. Ae, ae, ae mig auma laughing

Nr. 7 | posted by: Atviksorda-Anna | 15.08.2006 | 11:20:24 | [+] |

Ég mun gera mitt ýtrasta til að mæta á staðinn dulbúin sem frelsisstyttan. Finnst það vel viðeigandi. Og mér finnst eins og þú hafir gleymt orðinu "aðrir" í gestalistanum þínum, þarna á undan "guðdómlega fallegir karlmenn". Því ég er sannfærð um að einungis guðdómlega fallegir karlmenn séu skyldir þér, lesendur þínir og vinir þínir.

Nr. 8 | posted by: Fríða | 15.08.2006 | 11:40:59 | [+] |

Mjög gott Gestur. En það vantar ennþá smá. tíhíhí Eitt þarna er mjög nasty og ekki alveg 80's - minnir mig.

Ég hlakka svo til að sjá þig Sigga!!! smile

Ekkert spítaladrama og já, þessi misheyrðir textar síða hjá honum er algjör snilld. Það er fullt af skemmtilegu dóti þarna inni hjá honum. wink

Mín 80's nostalgía snýst nú mest um tónlist og sjónvarpsefni. Sumt VILL MAÐUR EKKI MUNA LINDA EINS OG HVERNIG MAÐUR KLÆDDI SIG! Að hugsa sér að þetta sé allt að koma aftur í dag. BULL!

Fríða. Þú hefur náttúrlega séð Ken. angel

Nr. 9 | posted by: anna | 15.08.2006 | 13:28:47 | [+] |

Bömmer ! Ég var kominn með sama og Gestur en ég hef ekki hugmynd um restina ... weepy

Nr. 10 | posted by: Hugz | 15.08.2006 | 14:01:22 | [+] |

Það hlýtur einhver að vita þetta!

Nr. 11 | posted by: anna | 15.08.2006 | 14:03:08 | [+] |

Ok, eftir mikla rannsóknavinnu ætla ég að bæta við Lagakrókum og svo er ég alveg skák og mát.
Grrrrr. gnasher

Nr. 12 | posted by: Gestur | 15.08.2006 | 15:55:20 | [+] |

Rétt og þetta síðasta er MJÖG kvikindislegt.

Á ég að gefa það upp?

Nr. 13 | posted by: anna | 15.08.2006 | 15:56:27 | [+] |

Nei. Best að pína sig aðeins lengur evil.

Nr. 14 | posted by: Gestur | 15.08.2006 | 16:40:07 | [+] |

hehehehehe happy

Nr. 15 | posted by: anna | 15.08.2006 | 16:46:52 | [+] |

Kannski smááá vísbendingu?

Nr. 16 | posted by: Gestur | 15.08.2006 | 18:18:50 | [+] |

Hmm...

Einn maður í stól á sviði. Með viskí glas.

Nr. 17 | posted by: anna | 15.08.2006 | 18:54:26 | [+] |

Dave Allen og málið er dautt happy

Nr. 18 | posted by: Atviksorða-Anna | 15.08.2006 | 19:04:43 | [+] |

hehehe rétt. wink

http://www.anna.is/img/tv/allen.gif

Nr. 19 | posted by: anna | 15.08.2006 | 19:07:01 | [+] |

Já, þetta var svínslega erfitt. Ég hefði aldrei getið upp á þessu. Þegar sjónvarpsþættir eru annars vegar, detta manni bara í hug framhaldsþættir.
En þetta var hressandi. happy

Nr. 20 | posted by: Gestur | 15.08.2006 | 19:22:34 | [+] |

Oh... ég er svo stupid embarassed heyrði bara byrjunina á Prúðu og svaraði strax... ekkert að hlusta á allt mixið... embarassed Auðvitað vissi ég allt hitt (meira að segja Dave Allen því ég er svo gömul ) ef ég hefði nú drullast til að lesa "mixið" og ekki verið svona fattlaus. Hélt að hinn hluti getraunarinnar væri lagið úr Mario Bros. This is so me nerd eins gott að það voru ekki vegleg verðlaun í boði *tíhí* En það var svaka gaman að hlusta á öll þessi lög. Kveiktu á mörgum gömlum minningum. cool

Nr. 21 | posted by: Sigga | 15.08.2006 | 19:57:43 | [+] |

Frábært mix, ég vissi nú ekki alveg allt en kom sjálfri mér þó á óvart með hvað ég mundi.... hí hí!

Það verður frábært stuð hjá ykkur á grímuballs-afmælinu.
colgate

Nr. 22 | posted by: Elín | 15.08.2006 | 21:48:52 | [+] |

Já og eitt enn, ég hlæ alltaf svo mikið af búningnum "maðurinn með ljáinn" á búningaleigu Íslands, ætli maður fái þennan LJÁ leigðan með???
laughing

Nr. 23 | posted by: Elín | 15.08.2006 | 22:00:13 | [+] |

Þessi hokuspokus tengill fær mig til að pæla í að mæta sem pimp. Ef ég hössla ekki út á það gerist það aldrei.

Nr. 24 | posted by: Kalli | 16.08.2006 | 4:08:29 | [+] |

Nei þetta var svínslegt, veit, tíhíhí.

Sigga, já það klikka greinilega margir og halda að ég sé í alvöru að spyrja um prúðuleikarana. Hafði þá nú bara með vegna þess að þeir koma mér alltaf í gott skap og til að hafa þessa tvo fúlu yndislegu karlgarma þarna bæði í byrjun og í endann. hehehe

Þetta eru akkúrat menn fyrir mig bara aðeins of gamlir.

Kalla þig samt góða að hafa þetta allt á hreinu en tilgangurinn er auðvitað að hrista upp í minnisstöðvum fólks frá þessu tímabili - almennt wink

Mario Bros lagið finnst mér alveg frábært. Á ekki lítið af góðum minningum við þann leik.

Maðurinn með ljáinn lol já. Spurning um að senda inn fyrirspurn bara!

Nr. 25 | posted by: anna | 16.08.2006 | 16:44:35 | [+] |

Er Tuma boðið?

Nr. 26 | posted by: D | 24.08.2006 | 18:43:33 | [+] |

Jebb. Tuma er boðið.

Nr. 27 | posted by: anna | 25.08.2006 | 9:43:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?








smilie happy wink colgate laughing toungue shy

angel embarassed doubt silent sad guilty sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

melodramatic weepy nerd clown chococat







 






party time
recent comments

Hugmyndir að búningum
Búðir á íslandi
Búningabúðir erlendis (hugmyndir)
Skemmtilegir linkar