"Hvað á ég eiginlega að vera?"
Þessi spurning leitar á mig oft á dag.
Af því ég veit hvað það er að vera í svona tilvistarkreppu með allskonar tilfinningakvíða og fælni hef ég ákveðið að halda ógeðslega töff grímuball þar sem skiptir engu máli hvað eða hver þú ert á meðan þú lítur út fyrir að vera það. Ekki ósvipað og í lífinu sjálfu - nema það er meira svona fyrir lengra komna.
Ástæðan fyrir því að ég er að halda þetta grímuball er sú að ég pantaði mér ógeðslega töff vængi á netinu - sem mig langar til að nota innan um annað fólk og til þess að verða ekki stimpluð insane var grímuball mjög skynsamleg lausn. Ég fæ að vera með vængina mína og öllum finnst það eðlilegt. Brian Tracey var ekkert að grínast þegar hann sagði að það væru til lausnir á öllum vandamálum.
Ef þig langaði að vera vinalegur fjöldamorðingi - þá er þetta tækifærið. Ef þig langaði að vera skóræktarbóndi, just do it! Ef þig langaði alltaf að vera hjúkrunarkona - go for it og ef þig langaði að verða slökkviliðsmaður en gerðist endurskoðandi. THIS IS YOUR CHANCE!
Þú getur verið hvað sem þér dettur í hug en það hefur ákveðna galla. Sérstaklega ef maður þjáist af valkvíða. Þessvegna skrifaði ég þennan texta. Hann mun ekkert hjálpa þér en hann mun kannski veita þér nógu mikinn innblástur til að fara á google og slá inn einhver skemmtileg orð eins og "super funky walrus costume" eða "batman deluxe costume" (preferred) eða "princess leia bikini costum how to".
Svo er líka hægt að smella á linkana hér til hægri til að fá hugmyndir.
Þó að mikið af þessum tillögum séu fyrir börn, þá er alveg hægt að láta margt af þessum hugmyndum virka fyrir fullorðin börn á öllum aldri.
Það er ekki um auðugan garð að gresja af grímuballs græjum fyrir Íslenska ríkisborgara í sínu heimalandi. Við erum að tala um heila búningaleigu (eintala), nánari upplýsingar hér til hægri. Svo er það Hókus Pókus á Laugavegi og félag íslenskra leikara Laugavegi 96. Leikbær selur líka allskonar skemmtilegt dót ef þú vilt dulbúast og ef þú veist um fleiri búðir máttu alveg láta í þér heyra á kommentakerfinu.
Þeir sem vilja vera með nýtt hár geta kíkt í Hárkollugerð Kolfinnu Knútsdóttur, Skólavörðustíg 8. Hjá henni er opið virka daga ellefu til fimm.
Vonandi hefur þessi lesning ekki gert þig afhuga orkudrykkjum eða Brian Tracey, hann er ágætur kallinn. No, really. Og ekki gleyma.. það er oft lang skemmtilegast að sjá hvað fólki dettur í hug að gera með hluti sem það finnur í eldhússkápunum heima hjá sér.