« Fyrsta færslan í alltof langan tíma | Main | Catching up file #2 »

Catching up file #1

Snemma sumarið 2006 fór ég í ferð til Lettlands með frænku minni og frænda.

Lettland er magnað land! Við dvöldum í höfuðborginni Riga og hún er bara AMAZING!!! Út um allt eru next to niðurnídd og að hruni komin hús sem eru svo....wonderful! reyndar eru þar líka mjög mikið af nýtískulegum háhýsum, en það er bara betra!!! (Ég elllska þegar tveir gjörólíkir hlutir blandast saman!! eins og hamingja og blóð og slíkt!) Gömlu niðurníddu húsin voru svo flott: eins og úr bíómynda "Town Ruins" , sum þeirra líktust ískyggilega húsunum úr villta vestrinu. Eitt var bara nákvæmlega eins, sömu gluggarnir, sömu vestris-dyrnar-mér leið eins og ég gæti farið úr leigubílnum, gengið inn og hitt alla klassísku kúrekana og heyrt vestrænsku, búllu-píanótónlistina. Venjulegu lettnesku húsin (sem eru ekki niðurnídd ruins eða nýtísku hýsi) voru líka increadible!!!!!!!!! Uppi í kringum þakið voru alltaf alveg magnaðar ufsagrýlu og marmara-style munstur!!!!!!!!!! Ég tók svona...milljón myndir sem ég hef ekki ennþá reclaim-að frá þeim. Gave my summer a nice aftertaste.

Um mitt sumarið 2006 fann ég killer Manga/Anime sölu-síðu. Ég fann fullt fullt af glæsilegum myndum af frábærum fígúrum og hlutum og ég valdi strax (en samt skynsamlega og í hófi) hvað mig langaði að panta. (Ég er sko algjör nískupúki, ég tími engu.) Til að gefa ykkur hugmynd um hvað japanskar fígúrur eru flottar og vel gerðar eru hér nokkrar myndir af því sem ég fann:

Inu Yasha, Kagome og Shippo úr Inu Yasha

Cool character úr Final Fantasy leikjaseríunni að nafni Sephrioth. I absoloutley ADORE him. Meðal varanna sem ég þarf að panta mér!

Vel gerð fígúra

Ekki beint minn stíll, en samt vistaði ég þessari mynd af því að...well...C'MON!! Fígúran er flott þó að stelpan sé ekkert svo spes.

Fullmetal Alchemist Milatary Pocket Watch

Yndisfríða vasaúrið mitt!!!! Þetta vasaúr er ástæðan fyrir því að ég fylgist með Fullmetal Alchemist bókunum í dag, það dugði fyrir mig að sjá það á vefnum til sölu undir nafninu Fullmetal Alchemist military pocket watch. It was love at first sight!!! Það hefur alla eiginleikana sem ég krefst að vasaúr hafi: Rómverskar tölur EKKI gallaðar!l, silfrað, fallegir vísar...it's perfect!!!

Að lokum vil ég sýna myndir af CLAMP chess köllunum. Ég skal útskýra: CLAMP er hópur af fjórum Japönskum kven-teiknimyndasöguhöfundum. Þær vinna saman við að teikna og skrifa verk sín og hafa gert marga merkis titla og uppáhaldsseríuna mína xxxHOLiC. Eftir þeim hafa verið framleidd mikið af leikföngum og fígúrum og nýlega voru gefnir út kassar hver með þrem persónum úr sögunum þeirra sem litlar styttur sem nota á sem taflmenn. Ég er mjög hrifin af þeim, þeir eru vel gerðir og persónur þeirra eru náttúrulega alltaf sérstaklega flottar.

CLAMP no kiseki vol. 1

Volume 1, Hvíti Mokona úr Tsubasa, Sakura úr Cardcaptor Sakura, Svarti Mokona úr xxxHOLiC.

Hef aldrei lesið Cardcaptor Sakura, held langmest uppá svarta Mokona auðvitað beint úr xxxHOLiC!

Þegar ég var svo að leita að þessu dóti útum allt fór ég að leita að hlutum frá xxxHOLiC og þá komst ég að því að það var byrjað að gera xxxHOLiC anime þáttaseríu!!!!!!!!!!! Ég fór í algert spennu/gleðikast og fann fyrstu þættina á YouTube og það var þá sem ég uppgötvaði þá kraftaverkasíðu!!! (frekar seint if you ask me)

Lok sumarfrís 2006 ákvað ég að búa til flotta og uppliftandi skóladagbók til að nota til að skipuleggja mig betur (bæði í og utan skóla) og líka til að kæta mig í ****skóla. Ég gerði flott cover sem ég plastaði utaná "blank-blaða bókina" með öllum uppáhalds mangapersónunum mínum og á hverja síðu (sem telst sem einn dagur) skrifaði ég eina quote línu úr einhverri bók eða þætti eða bíómynd. Þetta gerði ég til að geta hlegið að einhverju í þessum godforsaken skóla sem ég er (var) í.

Well, that's enough catching up for now, check again soon, much more coming!

Skrifaðu komment


smilie winky colgate happy boogie toungue
wahahahaha angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare