7/6/2006 Sumarfrí!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
YYYYYYYYYYYYYYEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEESSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Sorry about that, en það hafa nú örugglega allir fattað að ég er einn af þessum nemendum sem fagna því hömlulaust þegar það kemur sumarfrí eða verkfall. Ég man (auðvitað) að þegar verkfallið var nýbúið og við mættum í skólan í fyrsta skiptið eftir...laangann tíma var ég eina stelpan sem sagði "nei" þegar kennarinn spurði hvort við værum ánægð með að vera komin í skólan aftur. En to be fair væri ég ekki alltaf ánægð ef það kæmi verkfall, ég hefði dáið úr kvíða og hræðslu ef það hefði komið verkfall meðan ég væri í Hagaskóla, en þess vegna er ég mjööög ánægð með það að ég fékk að upplifa kennaraverkfall á meðan það var mögulegt. Og þar skall hurð nærri hælum! Ég var á mínu síðasta ári í Melaskóla þegar það átti sér stað, eitt ár í viðbót og gæti aldrei hafa upplifað kennaraverkfall og notið þess!
Wouldn´t that just be completeley AWFUL!?
Well anyways, þetta var svolítið langur útúrdúr (vá, ég vissi ekki að það væri til orð með þremur ú-um! I´m arowsed!) en þannig er ég líka.
En vá, ég get ekki ímyndað mér betri dagssetningu fyrir skólaslit! 06 06 06. Þetta er flottasta dagssetning sem ég hef nokkru sinni séð og hún er svo mögnuð!!!
Ég vaknaði klukkan 10:00 og eyddi öllum morgninum í að spila Castlevania Lament of iccocence í PlayStation en hann hafði ég nýlega klárað en var að spila hann aftur sem uppháldspersónan mín (vondi kallinn í öðru borðinu, vampýran Joachim Armster) með hidden name feature-i sem ég fékk eftir að vinna leikinn. Eftir skólaslitin sjálf leit ég á einkunnirnar mínar sem voru mjög góðar og svo hélt ég áfram að spila. Seinna fór ég niður í bæ á hjólinu mínu og fór í Nexus þar sem ég keypti mér ný-útkomna myndasögu sem ég hafði lengi beðið eftir að lesa.
Well, nuff said I have to go enjoy my summer vacation!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!