Aðeins um mig, önnur myndasöguserían sem ég féll fyrir
Þessi færsla var sköpuð vegna þess að mig langar að koma fram nokkrum atriðum um mig, og breiða áhugamál mín aðeins út. Auðvitað byrjaði ég á því að fjalla um japönsku myndasögurnar sem að ég safna, og dýrka. Það á sér einkennilega sögu hvernig aðdáun mín byrjaði á þeim, en þegar ég ákvað að skapa þessa færslu var ég í stuði til að skrifa um næstu myndasöguseríu sem ég féll fyrir á eftir þeirri fyrstu, og hana ætla ég að halda mér við.
Hún heitir xxxHolic, og mér fannst söguþráðurinn
höfða akkúrat til mín. Hún er um strák (Kimihiro Watanuki)
sem er bannfærður með því að hafa þann hæfileika að sjá anda og drauga.
Svo dregst hann inn í mjög skrýtið hús, og þar hittir hann nornina Yukó,
og aðstoðarmennina hennar (tvær ungar stelpur) sem heita Maru og Moro.
Yuko býðst til að uppfylla þá ósk hans um að hann þarf ekki lengur að geta
séð andana, en þegar hann fellst á það, er ekki hægt að snúa við, og áður
en hann veit af þarf hann að vera í þjónustuvinnu hjá Yuko, og vinna fyrir
hana!Þegar hann er svo búinn að vinna nóg hjá henni, ætlar hún að láta ósk
hans rætast, en í bili þarf hann að þjóna henni, og hann hittir ýmsa
viðskiptavini hennar, þar sem hún á búð sem uppfyllir óskir!!!Og..AUMINGJA
WATANUKI!!!Yuko er alls ekki skemmtilegasta persónan í heimi og getur
verið mjög andstyggileg!!!!En í raun og veru vill hún hjálpa honum, og er voðalega þægilegur og fyndinn character. Hjá (A) og (H) hefur hún fengið uppnefnið Dramadrottningin, og það er nú örugglega eitthvað sem til er í!Hinsvegar kynntist ég honum Kimihiro Watanuki, söguhetjunni í bókunum í gegnum Free comic book day demo sample úr bók #2 sem pabbi tók fyrir mig af Nexus-Free comic book day árið 2004 þar sem ég var í Frakklandi þann dag. Niðurstaðan var að ég byrjaði að lesa bækurnar vegna þess að mér fannst hann Watanuki svo æðislegur!!!!!!!!!!!!!!!!!!Ég meina það!!! þessi character er svo frábær að það hálfa væri nóg!!!Hann er svona typical.....well hann er bara eitthvað svo mikill Watanuki!Alltaf svo skapstór, og óheppinn....Ironicly he looks like me.....(eftir að ég er búinn að fá mér strákaklippingu).
Í tilefni af því að mér finnst hann svo frábær persóna ætla ég
að birta nokkrar myndir af honum:



Reyndar er hún Yuko líka mjög mikil aðalpersóna, og það teldist hálfgerður glæpur að birta ekki nokkrar myndir af henni líka. So, here you are, the witch in the wish store!!!!




...og svo nokkrar af þeim báðum:

Vááá....voðalega er ég eitthvað myndasjúk....Allavega, ég er það, og í meiri mæli en þið haldið...nú ætla að birta scannaðar síður úr bókunum til að gera alla kaupsjúka í þessar bækur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
MÚHÚHÚHÚHAAHAAHAAHAAAA!!!!!!!!!!!!!










Well, gjöriði svo vel. Þetta er kannski svolítið mikið af myndum, en ég þreytist ekki á þeim!!!Nú þarf ég hinsvegar að fara að sinna leiðinlegri hlutum, svo sem að búa til jólainnkaupalista, jólakort og passa bróður minn á meðan mamma er úti að borða......En eins restless og ég er getur verið að ég bloggi aftur í kvöld so see you later!!!
Komment
Helló ég held bara að ég falli fyrir þessum bókum með þessu áframhaldi Joco mín
En já við sjáumst seinna!:D:D:D
Assa
Skrifaði assa | 17.12.05 03:16
Hehe, já það er ekki svo erfitt að falla fyrir þeim sérstaklega þegar þú færð að sjá fullt af síðum úr þeim á...ég veit ekki frönsku, sænsku? ; D Hehehehe...
Annars fann ég bara ekki aðra scanna á ensku, nema litlu myndirnar þarna inn á milli. Svo hafði ég ekki þessar ensku í röð og svo hinar, vegna þess að ég raðaði myndunum eftir röð.
I´m sorry...jæja, sjáumst í kirkjuferðinni á þriðjudaginn. ; )
Skrifaði The toptomboy | 18.12.05 10:49
FRANSKA, JÓHÓ, FRANSKA! Ég trúi því ekki að þú þekkir ekki frönsku þegar þú sérð hana! Varstu ekki að enda við að seja að þú hefðir verið í Frakklandi á Free comicbook day?!
Skrifaði Birta | 15.03.06 10:01
Eh, jú en ætli ég hafi bara ekki mikið pælt í því hvaða tungumál þetta var...auðvitað hefði ég kannski átt að þekkja hana ég fletti nú í gegnum Inu Yasha bækur á frönsku þarna úti! ; )
Skrifaði The toptomboy | 02.04.06 01:21