« Klikkaði skólaheimurinn | Main | Ég, ég sjálf og Assa »

Snjór......

Þeir sem lásu Klikkaði skólaheimurinn vita að þegar við Dunno, Assa og systir hennar gengum saman heim þann dag, komu upp mjög fyndin samtöl, og er þetta blogg til að afhjúpa þau. Hmmm...það byrjaði einhvernveginn svona...

(14.nóvember 2005, mánudagur)

Joco: Já, Assa ég skil ekki hvernig aðferð þinni
við að ganga yfir götur er háttað! Ég meina
síðast þá varstu gengin tvö skref út á götuna
, svo kom bíll, og í staðinn fyrir að hoppa
til baka sem hefði verið fljótlegra þá hljóp-
stu yfir alla götuna skrækjandi af hræðslu!!!
COME ON!!!!!!!!!!!

Assa: *Nær ekki andanum af hlátri*

Dunno: Oh, come on Joco, Assa hugsar bara of mikið
"fram" til að bakka tvö skref til baka.

Maria (systir Össu): Ha, ha, ég þekki það sko
alveg hvernig Assa hleypur yfir götur!

(Við beygjum inn í götuna sem Assa
og Maria eiga heima í, og allt í einu
fer að snjóa)

Assa: Oh, it´s snowing!

Dunno: SNOW!!!WOOOOHOOO!!!!!!

Maria: Ah, það snjóar....

Joco: (öskrar svo að allt hverfið heyri)
NOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO!!!!!!!!!!!

Allar (fyrir utan mig): (hlæja, og gera grín að
þessu, ég nenni ekki að segja allt
sem þær sögðu!!!!!!)

Joco: This isn´t funny, hvernig á ég að hjóla!?!?

........

allavega, förum inn! það er kalt, og við
eigum eftir að vinna The classroom!!!!!!

Dunno: Nei bíddu.....

(Dunno, Assa og Maria fara að reyna að ná
snjókornum beint í munninn með mjöööög
miklum tilþrifum!!!!!)

Joco: Sko, þegar þið standið svona kyrrar með munninn galopinn spyr maður sig; Hvað myndi fólk halda ef það væri ekki snjór!?!

Assa: (Skellihlær, en fagnar því svo að henni tókst að veiða snjókorn í munninn)

(Eftir góða stund tekst mér og Mariu sem var hætt snjókorna-munnveiðunum að draga Össu að hurðinni, og koma Dunno af stað heim. Eftir smá stund kveðjum við Dunno, segjum eitthvað rugl við hvor arðra, og erum við það að fara inn þegar....)

Dunno: (...kemur hlaupandi mjög dramatískslega, eins og í slow motion að okkur, hárið flyksast fram og aftur og á meðan segir hún: Sttellppuuurrr!!!!!!!! Að lokum stansar hún fyrir neðan tröppurnar og húfan dettur af henni. Hún tók hana upp í snatri og setti hana aftur á sig á meðan við hinar hlógum. Maður hefði búist við því eftir allt þetta að hún myndi segja: Stelpur! Viggo Mortensen var að koma yfir gatnamótin þarna!!! En í staðin stóð hún beint fyrir framan okkur, og brosti mjög barnalega og sagði: Hvað er að læra?)

Tsk, Tsk, hún Dunno....... : D

Eftir að hafa sagt henni hvað var að læra, og hlæja enn meir fórum við Assa og Maria inn, og Dunno fór heim (til ömmu sinnar).

Síðan byrjaði brjálaði og fyndni dagurinn okkar Össu, en það er önnur saga, í næsta bloggi!!! ; )

Skrifaðu komment


smilie winky colgate happy boogie toungue
wahahahaha angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare