My favorite store has reached out in the right time!!!
Í gær var fyrsti vetrarfríisdagurinn minn, og allan daginn var ég heima í náttfötunum mínum að passa bróður minn og við gerðum ekkert annað en að horfa á Simpson´s 12. eða 11. season. Öðru hvoru fór ég reyndar inn í herbergi í tölvuna og glímdi við SUDOKU þraut, sem ég held að sé eini stærðfræði leikurinn Í HEIMI sem að ég hef gaman að.
Auðvitað var mjög gaman að vera í fríi, en því miður er mjög erfitt fyrir manneskjur sem eru utan við sig, og annars hugar eins og mig að aðlagast nýjum aðstæðum. Í gær var miðvikudagur, og það þýðir að ég átti að fara í karate kl. 18:10, en strætisvagninn kemur kl. 18:42. Af því að ég var í fríi fannst mér eins og það væri bara laugardagur, en þá er ekki karate á þessum tíma (heldur kl. 12:00 að morgni) og ég fann ekki fyrir neinni þörf fyrir að æfa karate, og fattaði ekki að það væri karate fyrr en klukkan var orðin 18:34. Ég panic-eraði algerlega, og í einu hendingskasti var ég kominn í almennileg föt, með peninga í strætó og með karatedótið í höndunum. Ég þurfti að bíða alveg nógu lengi til að ná strætisvagningum, og var orðin alltof sein. Þegar ég loksins komst í karate sá ég hinsvegar alls ekki eftir því að hafa mætt. Við vorum að fella, og þegar það var búið raðaði kennarinn nokkrum krökkum upp í eins konar zig-zag röð. Við hin áttum að hlaupa á milli og framkvæma eina tækni hjá hverjum, og öskra í hvert skiptið. Hjá fyrsta átti að kýla í andlitið (ekki í alvörunni auðvitað), hjá næsta átti að kýla í magann (þá má snerta aðeins), í næsta átti að sparka í púða sem hann hélt á og að lokum átti maður að fella þann seinasta. Ég var eins og venjulega með þeim einu sem gerðu þetta með fullum hraða, og góðum öskrum, og ekki svona lélegum stelpu-öskrum úr leiðinlegu bíómyndunum, heldur góðu öskri sem hljómar eins og úr stráki (cool stráki, (eins og mér og vinir mínir) ekki aumingja. ; ). Það eina sem þarf er að breyta aðeins tónhæðinni, og það hef ég gert síðan að ég var óviti. ; )
Eftir æfinguna þurfti ég að taka strætó heim, en ég vildi ekk taka vagninn sem ég hef verið að taka nýlega vegna þess að hann fer ekki nógu nálægt heimili mínu. Þess vegna ákvað ég að reyna að taka nr. 11 á Hlemmi, og koma við í uppáhaldsbúðinni minni í leiðinni: Teiknimyndasögubúðina Nexus. Þetta ákvað ég einfaldlega út af því að ekkert kvöld hentaði betur. Ég var í fríi, og þá væri allt í lagi að villast, eða lenda í einhverskonar ævintýri og koma allt of seint heim. Auðvitað væri líka hægt að lenda í því á laugardegi, en þá, eins og ég sagði áðan er karate kl. 12:00 að morgni, og þá er mjög bjart og rólegt. Nei, það er miklu meira spennandi að lenda í einhverju svona þegar það er dimmt, drungalegt og hættulegt úti.
Að svo mæltu, til að gera langa sögu stutta (sem er örugglega of seint, er hún ekki svoítið löng?) hljóp ég niður á Hlemm og fór beint í Nexus.
Þegar ég kom þangað komst ég að því að það var heldur betur búið að breyta henni til hins betra!!!DVD og VHS rekkinn var örugglega tvöfalt stærri, og með miklu meira efni!Þar mátti finna Zelda season, Futurama, Simpsons, Inu Yasha og margt annað æðislegt!!!Ekki nóg með það, en það var líka komið meira teiknimyndasögu-gerðar dót. Í mjög langan tíma hafa verið til þarna kennslubækur um hvernig maður teiknar Manga. Nýlega hafa líka bætst við bækur sem kenna að lesa og skrifa japönsku, en núna voru komnir útlínupennar, breiðir og mjóir, fínir teiknipennar, tónablaðasett og æfingamyndir fyrir byrjendur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!(I´M IN HEAVEN!!!!!! : D)
Í langan tíma hef ég ekki komið í búðina (um það bil einn mánuð eða svo) en núna var ég kominn á akkúrat rétta tímanum!My favorite store had reached out in the perfect time!!!(Fyrir utan það að ég var ekki með neina peninga, og gat ekki keypt neitt af þessu!!!*sniff* :´( )
Að lokum vil ég bara segja að Nexus er æðisleg búð, og þægilegur staður til að vera á. Þar eru allir nytsamlegir hlutir fyrir utan matvörur og tölvur. Star Wars action fíkúrur, Japanskir DVD-diskar á sölu og leigu, teiknikennslubækur fyrir Manga og raunveruleikateikningar, Pokémon spil og mikilvægast af öllu uppáhalds myndasögurnar mínar Inu Yasha og xxxHolic!!!!!!!!!


Komment
Ég er alveg sammála Nexus er besta búð í heimi og Inu yasha og xxx Holic eru (meðal fárra annara) bestu bækur í heimi! =)
Skrifaði angel | 29.11.05 01:05
Oh you got that right!!!
Both books like that and friends like you guys are to kill for!!! : )
Skrifaði The toptomboy | 02.04.06 01:48