Lykillinn, dyrnar og síðasta skipið
Því miður er ég búin að vera mjög upptekin nýlega og þess vegna hef ég skrifað um einn dag í mörgum færslum. Þessa færslu er með ómögulegu móti hægt að fatta, nema að viðkomandi sé búinn að lesa eftirfarandi færslur, í eftirfarandi röð: Klikkaði skólaheimurinn, Snjór...... og Ég, ég sjálf og Assa.
Lesið þetta, and enjoy the information below. Thank you.
Ok...nú skal byrja þar sem frá var horfið.
Ég byrjaði að hamast í lyklinum, og Assa heyrði það, og kom allt í einu til minnar hjálpar. Á þeirri stundu var ég á hjánum við dyrnar svo að ég sæi inní lásinn og Assa var á sama tíma hinumegin við hurðina að hamast í hurðahúninum. Eftir nokkrar tilraunir við snúning lykilsins tókst mér loksins að snúa honum í réttan hring. Þá opnaði ég hurðina (ennþá á hnjánum við lásinn, viss um að Assa stæði yfir mér hjá dyrunum), en það var á sama tíma og þegar hún Assa opnaði dyrnar líka og ég sá að hún stóð ekki yfir mér eins og ég hélt. Hún hafði líka farið niður á hnén til að fá focus á lásinn. Um leið og andlit okkar mættust við þetta fórum við að hlæja, við höfðum báðar búist við því að hin stæði upprétt, en við máttum ekki vera að því að hlæja mjög lengi. Síðasta skipið beið okkar og við þurftum að vinna það. Það gæti hafa tekið mikið af öskrum og tilþrifum, og jafnvel nokkra stofuvasa, en loks tókst okkur að vinna það.
Þegar því var lokið byrjaði world 8, og ég þurfti að fara í karate.
Það var mjög mikið ævintýri, ég mátti aldrei stoppa, annars átti ég það á hættu að missa af strætó. Ég mátti líka alls ekki missa af þessum tíma, gráðun er að koma og ég verð að hafa allavega 65% mætingu til þess að vera 'acceptable test-taker'.
Til að gera langa sögu stutta komst ég í karate og aftur til baka, fór svo örugglega að leika mér og fór svo að læra rétt áður en ég sofnaði. Sorry about the quick simple ending, en ég þoli ekki að blogga um þennann dag lengur, it´s even more annoying to me, than it is to you!!!!!
Þess vegna verð ég að blogga um eitthvað annað til að fá útrás.
Thus I am happy to say...this blog has officially ended!!!!!!!!!!