« I am not a nerd!!! | Main | Klikkaði skólaheimurinn »

Hinn týpíski skóladagur

Í dag vaknaði ég því miður klukkan tvær mínútur í 8am. Ég paniceraði, og flýtti mér í föt, leðurjakka og skó, skellti svo á mig skólatöskunni og þaut út. Enginn tími til að borða eða neitt. Þegar ég kom rétt á tíma sat Assa við stærðfræðistofudyrnar. Ekki tangur né tetur sást af Dunno, vegna þess að hún var veik.

Eftir langan, stærðfræðitíma með ömurlegu kennslubókinni 8-tíu (einni af þessum nýju stærðfræðibókum sem geta ekki kennt almenna stærðfræði) var kominn tími á ensku. Við biðum örugglega í 10 mín. áður en pirraði gangavörðurinn var kominn og lét alla 8. bekkina fara í röð og ganga burt. Ég og Assa vorum tvö risastór spurningamerki, hvað í andskotanum var í gangi? Á leiðinni í matsalinn (já, við stefnud semsagt þangað?) Þar var eitthvað ´tónlist fyrir alla´(þegar þeir segja alla eiga þeir við alla 8.bekkinga.) Einhverjir gaurar ætluðu að taka nokkur þjóðlög, sem þeir gerðu. Þeir komu líka með eina draugasögu, og lög um það þegar stelpurnar syngja um strákana, og þegar strákarnir syngja um stelpurnar. Ég var mjög hrifin af ´stelpur syngja um strákana´lagið, enda var það einhvernveginn svoa: Það á að strýkja strákaling, hend'onum nið´rí kolaping, láta hann finna landfesting og láta hann svo hlaupa allt um kring.... Því miður sungum við svo hátt að diskókúlan uppi í loftinu gaf sig, og datt niður á gólfið. Loftið er fremur hátt í matsalnum og hún féll úr ca fjögurra metra hæð rétt á bakvið mig og Össu. Mér brá svo mikið að ég brást við á minn eigin hátt, og barði vatnsflöskunni minni í borðið sem við sátum við. Því miður gaf hún sig líka af öllum þunganum og allt vatnið skvettist yfir ákveðinn aðila sem skal verða nafnlaus. Eftir að gera mitt albesta við að sleppa frá matsalnum áður en að einhver náði mér og sendi mig skólastjórans, með Össu á hælunum hlupum við heim til mín og sóttum nestið mitt, þar sem ég hafði ekkert borðað í hálfan sólarhring og ekki haft nokkurn tíma til að borða nokkuð í morgun. Þegar við lögðum loksins af stað til baka þurftum við að borða nestið okkar á leiðinni þar sem við áttum engan tíma að missa. Þegar við komum aftur í skólann var komið að efnafræði, einu af mínum uppáhaldsfögum. Eftir þetta kláraðist skóladagurinn eiginlega bara mjög venjulega, ég þurfti auðvitað að fela mig fyirir kennurum og öðru starfsfólki, en annars er ekki eins og ég sé ekki vön svoleiðis shitt.

Þegar ég kom heim fór ég beint í tölvuna þangað til að ég fór í myndlistatíma, en þeir eru alltaf á föstudögum. Þar vorum við að læra að gera handrit við bíómyndir. Ég og vinufélgainn minn vorum að gera handrit um srták sem lendir í því að pabbi hans fær heilan bókaskáp ofan á sig. Mjög spennandi, eða þannig. En kennarinn lét okkur byrja á því að gera svona handrit, svo við drifum það af. Við náðum reyndar ekki að drífa það neitt mjög hratt af vegna þess að við urðum að vinna að handritinu á Mac-a, og hvorug okkar kunni neitt sérstaklega vel á þau tæki. (Nei, siriusly þetta var mjög óþægilegt!!!Til að gera ( þá þurfti ég að nota takkann þar sem er *, og það er ekki hægt að ýta á ´stroka út´ takkann og halda honum niðri, þú verður að ýta aftur og aftur fyrir hvern einasta staf!!!)Þegar ég kom heim fór ég auðvitað aftur í tölvuna til að blogga og tala við einhvern á msn....hey (sunglasses) var að koma inná!!!!

Komment

Ég man vel eftir þessum degi wink
Hann var alveg ótrúlegur en sjáumst í skólanum
ASSA

Hehe... ég man vel eftir göngum þessa skóla og ef vel er að gáð sést ég á svart/hvítri bekkjarmynd í peysu vinar kærasta míns þegar ég var í 10. bekk! Ég hataði skólann. Fannst hann ömurlegasta uppfinning allra tíma, en það var þá...

Scool..... amazing thig... smile

Yup! Sérstaklega Melaskóli......How I miss that school....... :'(

Anyway, remember our secret plan!!! ; )

Skrifaðu komment


smilie winky colgate happy boogie toungue
wahahahaha angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare