Ég, ég sjálf og Assa
Þeir sem lásu Klikkaði skólaheimurinn og Snjór...... vita að eftir brjálaða samtalið eftir "venjulega" skóladaginn þann dag sem þessi blogg snúast um, fór ég heim með Össu vegna þess að við ætluðum að halda áfram með The classroom 2 og ég ætlaði líka að hjálpa henni að vinna erfið borð úr Super Mario Bros. 3 í world 7.
Við byrjuðum á því að fara í The Classroom 2. Þar komumst við frekar langt, eða alveg fram í borðið: Mrs. Henningan´s second test. (Level nr. 7b á svindlista ) Þegar Assa nennti ekki lengur að reyna að svindla á prófi nr. 500 og súrkál, ákváðum við að borða eitthvað, en þá var þeim systrum og mér boðið uppá pönnukökur. (WHHHEEEE!!!!! : D) Eftir að við borðuðum þær og hentum þeim occationally í hvor aðra, fórum við aftur í The classroom 2. Því miður var þetta borð mun erfiðara en við vorum farnar að halda, og eftir smá tíma gafst Assa upp á þessu. Þegar við gengum inn í stofuna rak ég augun í Game Boy-inn hennar og man eftir því að ég ætlaði að hjálpa henni í honum, og stakk upp á að fara í hann. Flestir vita að erfitt er að skilja tvö tölvusjúklinga og einn Game Boy í sundur, og auðvitað fórum við í leikinn. Ég hjálpaði henni með nokkur erfið borð í world 7, sem er persónulega mín uppáhaldsveröld. World 7 er næstsíðasta veröldin, en í endanum í hverri world er lokaborðið alltaf þannig að þar áttu að komast í gegnum skip. Í world 7 er síðasta skipið, sem er auðvitað svolítið erfitt. Svo að á meðan Assa fagnaði því að vera komin úr síðasta borði upphófst æðisgengilega fyndið samtal sem byrjaði svona:
Assa: YESSS!!!!!YAYYY!!!!!!!WHHHOOOO!!!
Joco: And welcome to the hardest ship of them all. And you´re small.
Assa: Of them all?!OH!!!I´m small!!!!!!!!!
(Eftir þetta hlógum við báðar, en þá byjaði Assa á borðinu....)
Assa: Ó, nei...nei...nei-(Mario í leiknum deyr)
(þetta var svolítið fyndin atburðarrás, og við hlógum og gerðum grín að henni. Eins og sumir vita þá þegar fólk gerir grín að einhverju þá endurtekur það oft atburðarrásina. Það er einmitt það sem Assa gerði, og þegar hún kom að síðasta "nei"-inu færðist skipið til á skjánum vegna þess að hún hafði tapað. Þess vegna rétt eftir síðasta "nei"-ið kom snöggt; OOOHHH!!!!!!. Útkoman varð því einhvernveginn svona):
Assa: HAHAHAHA...nei...nei....nei-OOOHHH!!!!!!
Það var líka svolítið fyndið, svo fyndið að ég sór að ég myndi blogga um þetta þegar ég kæmi heim. Næst skrapp ég aðeins á klósettið, og eins paranojuð og ég er dró ég fyrir baðkers-gardínurnar og læsti hurðinni. Fljótt kom svo að því að ég þurfti að opna dyrnar aftur til að komast út, en dyrnar (og lásinn) létu ekki að stjórn. Ég var semsagt læst inni á baðherbergi, og Assa var ein í stofunni deyjandi aftur og aftur, þegar ég þurfti að hjálpa henni. Lovely.
En, eins og ég er hef ég alltaf verið of feimin til að byðja um hjálp við að brjótast aftur út þegar þetta gerist, svo að áður en það gerist geri ég allt sem mögulegt er við aðstæðurnar til að komast út sjálf.
Nærri má geta að ég hef alltaf komist út. ; )
Ég byrjaði að hamast í lyklinum, og Assa heyrði það, og kom allt í einu til minnar hjálpar. Á þeirri stundu var ég á hjánum við dyrnar svo að ég sæi inní lásinn og......
AHHH!!!!!!!!! LOOK AT THE TIME!!!!!!!!! Ég þarf að fara í myndlista-movie-making tíma NÚNA! Því miður hef ég ekki aðgang að tölvunni minni þessa helgi, en ég segi ykkur restina á mánudag, 21. nóvember!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Komment
Mhmhmhehahahaha... ég sökka í super mario bros. Ég sökka í öllum leikjum...
Skrifaði Júlía | 20.11.05 12:32
Þú þarft bara æfingu....ég þarf annars að biðja mömmu um að setja NES forritið aftur í tölvuna mína svo að ég geti farið að spila hann ´hér´.
Skrifaði The toptomboy | 21.11.05 03:11
Mig langar í super mario bros 3! =)
Skrifaði angel | 29.11.05 01:35
Well, christmas are coming up, and I´m exactly the person expected to fix that....; )
Skrifaði The toptomboy | 29.11.05 07:45