« október 2005 | Main | desember 2005 »

nóvember 30, 2005

The faithfull trip to the bathroom......

Í hádegishléinu í dag fór ég með Össu á baðherbergið eins og alltaf. En í þetta skipti var ferðin þangað svolítið fríkuð. Fyrst þegar Assa fór inná einn bás var klósettið bilað. Í annað skiptið var einum of mikið af blautum pappír á gólfinu ínná básnum. Í þriðja skiptið fór hún inná básinn,og ekkert gerðist....fyrr en að hún sturtaði niður og fór út.

En ballið var ekki búið enn. (Auðvitað ekki, jólaballið er á morgun!!!*) Þegar ég spurði Össu hvað hefði verið að fyrsta klósettinu svaraði hún:

Assa: Umm...The "seta" was dálítið skýtug.

Joco: Þú veist, þetta hljómaði mjög mikið eins og "seta". Sko, ekki "seta" heldur "z". (Til þess að sýna Össu hvað ég átti við, bleytti ég fingurinn og krotaði z á spegilinn.)

Assa hló mjög mikið eftir þetta, en eftir að hún hafði þvegið sér um hendurnar steig hún óvart ofan í tyggjóklessu, og sýndi það með mjög miklum tilþrifum!!!Hún öskraði svo hátt, að ég hélt að hún hefði séð rottu.

*By the way, I´m NOT going to that!!!!!

nóvember 25, 2005

Lykillinn, dyrnar og síðasta skipið

Því miður er ég búin að vera mjög upptekin nýlega og þess vegna hef ég skrifað um einn dag í mörgum færslum. Þessa færslu er með ómögulegu móti hægt að fatta, nema að viðkomandi sé búinn að lesa eftirfarandi færslur, í eftirfarandi röð: Klikkaði skólaheimurinn, Snjór...... og Ég, ég sjálf og Assa.

Lesið þetta, and enjoy the information below. Thank you.

Ok...nú skal byrja þar sem frá var horfið.

Ég byrjaði að hamast í lyklinum, og Assa heyrði það, og kom allt í einu til minnar hjálpar. Á þeirri stundu var ég á hjánum við dyrnar svo að ég sæi inní lásinn og Assa var á sama tíma hinumegin við hurðina að hamast í hurðahúninum. Eftir nokkrar tilraunir við snúning lykilsins tókst mér loksins að snúa honum í réttan hring. Þá opnaði ég hurðina (ennþá á hnjánum við lásinn, viss um að Assa stæði yfir mér hjá dyrunum), en það var á sama tíma og þegar hún Assa opnaði dyrnar líka og ég sá að hún stóð ekki yfir mér eins og ég hélt. Hún hafði líka farið niður á hnén til að fá focus á lásinn. Um leið og andlit okkar mættust við þetta fórum við að hlæja, við höfðum báðar búist við því að hin stæði upprétt, en við máttum ekki vera að því að hlæja mjög lengi. Síðasta skipið beið okkar og við þurftum að vinna það. Það gæti hafa tekið mikið af öskrum og tilþrifum, og jafnvel nokkra stofuvasa, en loks tókst okkur að vinna það.

Þegar því var lokið byrjaði world 8, og ég þurfti að fara í karate.

Það var mjög mikið ævintýri, ég mátti aldrei stoppa, annars átti ég það á hættu að missa af strætó. Ég mátti líka alls ekki missa af þessum tíma, gráðun er að koma og ég verð að hafa allavega 65% mætingu til þess að vera 'acceptable test-taker'.

Til að gera langa sögu stutta komst ég í karate og aftur til baka, fór svo örugglega að leika mér og fór svo að læra rétt áður en ég sofnaði. Sorry about the quick simple ending, en ég þoli ekki að blogga um þennann dag lengur, it´s even more annoying to me, than it is to you!!!!!

Þess vegna verð ég að blogga um eitthvað annað til að fá útrás.

Thus I am happy to say...this blog has officially ended!!!!!!!!!!

nóvember 17, 2005

Ég, ég sjálf og Assa

Þeir sem lásu Klikkaði skólaheimurinn og Snjór...... vita að eftir brjálaða samtalið eftir "venjulega" skóladaginn þann dag sem þessi blogg snúast um, fór ég heim með Össu vegna þess að við ætluðum að halda áfram með The classroom 2 og ég ætlaði líka að hjálpa henni að vinna erfið borð úr Super Mario Bros. 3 í world 7.

Við byrjuðum á því að fara í The Classroom 2. Þar komumst við frekar langt, eða alveg fram í borðið: Mrs. Henningan´s second test. (Level nr. 7b á svindlista ) Þegar Assa nennti ekki lengur að reyna að svindla á prófi nr. 500 og súrkál, ákváðum við að borða eitthvað, en þá var þeim systrum og mér boðið uppá pönnukökur. (WHHHEEEE!!!!! : D) Eftir að við borðuðum þær og hentum þeim occationally í hvor aðra, fórum við aftur í The classroom 2. Því miður var þetta borð mun erfiðara en við vorum farnar að halda, og eftir smá tíma gafst Assa upp á þessu. Þegar við gengum inn í stofuna rak ég augun í Game Boy-inn hennar og man eftir því að ég ætlaði að hjálpa henni í honum, og stakk upp á að fara í hann. Flestir vita að erfitt er að skilja tvö tölvusjúklinga og einn Game Boy í sundur, og auðvitað fórum við í leikinn. Ég hjálpaði henni með nokkur erfið borð í world 7, sem er persónulega mín uppáhaldsveröld. World 7 er næstsíðasta veröldin, en í endanum í hverri world er lokaborðið alltaf þannig að þar áttu að komast í gegnum skip. Í world 7 er síðasta skipið, sem er auðvitað svolítið erfitt. Svo að á meðan Assa fagnaði því að vera komin úr síðasta borði upphófst æðisgengilega fyndið samtal sem byrjaði svona:

Assa: YESSS!!!!!YAYYY!!!!!!!WHHHOOOO!!!

Joco: And welcome to the hardest ship of them all. And you´re small.

Assa: Of them all?!OH!!!I´m small!!!!!!!!!

(Eftir þetta hlógum við báðar, en þá byjaði Assa á borðinu....)

Assa: Ó, nei...nei...nei-(Mario í leiknum deyr)

(þetta var svolítið fyndin atburðarrás, og við hlógum og gerðum grín að henni. Eins og sumir vita þá þegar fólk gerir grín að einhverju þá endurtekur það oft atburðarrásina. Það er einmitt það sem Assa gerði, og þegar hún kom að síðasta "nei"-inu færðist skipið til á skjánum vegna þess að hún hafði tapað. Þess vegna rétt eftir síðasta "nei"-ið kom snöggt; OOOHHH!!!!!!. Útkoman varð því einhvernveginn svona):

Assa: HAHAHAHA...nei...nei....nei-OOOHHH!!!!!!

Það var líka svolítið fyndið, svo fyndið að ég sór að ég myndi blogga um þetta þegar ég kæmi heim. Næst skrapp ég aðeins á klósettið, og eins paranojuð og ég er dró ég fyrir baðkers-gardínurnar og læsti hurðinni. Fljótt kom svo að því að ég þurfti að opna dyrnar aftur til að komast út, en dyrnar (og lásinn) létu ekki að stjórn. Ég var semsagt læst inni á baðherbergi, og Assa var ein í stofunni deyjandi aftur og aftur, þegar ég þurfti að hjálpa henni. Lovely.

En, eins og ég er hef ég alltaf verið of feimin til að byðja um hjálp við að brjótast aftur út þegar þetta gerist, svo að áður en það gerist geri ég allt sem mögulegt er við aðstæðurnar til að komast út sjálf.

Nærri má geta að ég hef alltaf komist út. ; )

Ég byrjaði að hamast í lyklinum, og Assa heyrði það, og kom allt í einu til minnar hjálpar. Á þeirri stundu var ég á hjánum við dyrnar svo að ég sæi inní lásinn og......

AHHH!!!!!!!!! LOOK AT THE TIME!!!!!!!!! Ég þarf að fara í myndlista-movie-making tíma NÚNA! Því miður hef ég ekki aðgang að tölvunni minni þessa helgi, en ég segi ykkur restina á mánudag, 21. nóvember!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

nóvember 16, 2005

Snjór......

Þeir sem lásu Klikkaði skólaheimurinn vita að þegar við Dunno, Assa og systir hennar gengum saman heim þann dag, komu upp mjög fyndin samtöl, og er þetta blogg til að afhjúpa þau. Hmmm...það byrjaði einhvernveginn svona...

(14.nóvember 2005, mánudagur)

Joco: Já, Assa ég skil ekki hvernig aðferð þinni
við að ganga yfir götur er háttað! Ég meina
síðast þá varstu gengin tvö skref út á götuna
, svo kom bíll, og í staðinn fyrir að hoppa
til baka sem hefði verið fljótlegra þá hljóp-
stu yfir alla götuna skrækjandi af hræðslu!!!
COME ON!!!!!!!!!!!

Assa: *Nær ekki andanum af hlátri*

Dunno: Oh, come on Joco, Assa hugsar bara of mikið
"fram" til að bakka tvö skref til baka.

Maria (systir Össu): Ha, ha, ég þekki það sko
alveg hvernig Assa hleypur yfir götur!

(Við beygjum inn í götuna sem Assa
og Maria eiga heima í, og allt í einu
fer að snjóa)

Assa: Oh, it´s snowing!

Dunno: SNOW!!!WOOOOHOOO!!!!!!

Maria: Ah, það snjóar....

Joco: (öskrar svo að allt hverfið heyri)
NOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO!!!!!!!!!!!

Allar (fyrir utan mig): (hlæja, og gera grín að
þessu, ég nenni ekki að segja allt
sem þær sögðu!!!!!!)

Joco: This isn´t funny, hvernig á ég að hjóla!?!?

........

allavega, förum inn! það er kalt, og við
eigum eftir að vinna The classroom!!!!!!

Dunno: Nei bíddu.....

(Dunno, Assa og Maria fara að reyna að ná
snjókornum beint í munninn með mjöööög
miklum tilþrifum!!!!!)

Joco: Sko, þegar þið standið svona kyrrar með munninn galopinn spyr maður sig; Hvað myndi fólk halda ef það væri ekki snjór!?!

Assa: (Skellihlær, en fagnar því svo að henni tókst að veiða snjókorn í munninn)

(Eftir góða stund tekst mér og Mariu sem var hætt snjókorna-munnveiðunum að draga Össu að hurðinni, og koma Dunno af stað heim. Eftir smá stund kveðjum við Dunno, segjum eitthvað rugl við hvor arðra, og erum við það að fara inn þegar....)

Dunno: (...kemur hlaupandi mjög dramatískslega, eins og í slow motion að okkur, hárið flyksast fram og aftur og á meðan segir hún: Sttellppuuurrr!!!!!!!! Að lokum stansar hún fyrir neðan tröppurnar og húfan dettur af henni. Hún tók hana upp í snatri og setti hana aftur á sig á meðan við hinar hlógum. Maður hefði búist við því eftir allt þetta að hún myndi segja: Stelpur! Viggo Mortensen var að koma yfir gatnamótin þarna!!! En í staðin stóð hún beint fyrir framan okkur, og brosti mjög barnalega og sagði: Hvað er að læra?)

Tsk, Tsk, hún Dunno....... : D

Eftir að hafa sagt henni hvað var að læra, og hlæja enn meir fórum við Assa og Maria inn, og Dunno fór heim (til ömmu sinnar).

Síðan byrjaði brjálaði og fyndni dagurinn okkar Össu, en það er önnur saga, í næsta bloggi!!! ; )

nóvember 15, 2005

Klikkaði skólaheimurinn

Ekki gera ykkur of miklar vonir, nafnið ´is just for show´. Það gerðist ekkert mikið fáránlegt og brjálað í skólanum í dag, (14/11/´05) fyrir utan það að einn kennari brjálaðist á skrifborðsstólnum í prófinu í dag, og datt að lokum af honum. Stóllinn hentist um herbergið, og reif nokkur prófblöð, og sumir nemendur þurftu að fá ný. Ó já, og einn nemandi henti sér út um gluggann í stærðfræðitíma vegna þrýstingi vegna þess að honum fannst hann alls ekki geta lært hlutfallsreikning. En stærðfræðistofan er á jarðhæð, og glugginn sem notaður var var næstum alveg opinn. No harm done. Að lokum tókst einum krakka að kveikja í lasanga rétti í heimilisfræði. Kennarinn þurfti umsvifalaust að grípa næsta slökkvitæki, en það var því miður frammi á gangi. Maturinn var næstum búinn að brenna til kaldra kola, og allir misstu matarlistina.

....

Ummm....just in case you can´t tell....I was being sarcastic. ; ) Það hljómaði bara eitthvað svo fyndið að láta þetta heita þessu nafni, segja svo að ekkert merkilegt hafi gerst í skólanum og telja svo allt þetta upp!!!! : D

Ég fékk hugmyndina úr tveimur mjög skemmtilegum tölvuleikjum, The classroom og The classroom 2 . I feel I should warn you though, þessir leikir eru ekki fyrir viðkvæmar sálir, enda snúast þeir um kolbilaða, morðóða (bókstaflega) og svindlgjarna háskólanemendur. Kennararnir eru algerar skepnur, og nemendurnir eru mjög margir morðóðir glæpamenn. Leikurinn snýst um að ferðast um kennslustofuna og svindla af einum félaga sínum án þess að kennarinn nái þér. Ég spilaði The classroom 2 fyrst í júlí í ár með gamalli vinkonu minni sem hefur nú flutt í burtu. : ( En eins og ég er finnst mér hann mjög spennandi, hann er mjög, mjöööög violent og hann er mjög fyndinn. Auðvitað ekki high, high quality, skapað af einhverjum avarege joe, allir characterar eru táknaðir með mislituðum hringjum (kennarinn rauður, þú blár, venjulegir grænir....)Ef einhver talar heyrist eitthvað rugl og það koma myndasögu talblöðrur. Veeery amusing!!!!: D : D

Well...þegar ég sagði fyrst að ekki mikið brjálað hafði gerst í skóanum var ég ekki að bluffa. Ekkert gerðist fyrr en við lögðum af stað heim. Það sem gerðist þá mun verða afhjúpað í næsta bloggi.

P.S. Hey, ég veit að það er erfitt að vinna fyrstu borðin sem byrjandi, en ekki gefast upp vegna þess að allt nice ofbeldisstuffið kemur fram aðeins seinna, so keep up trying!!!

.....

Ó, fine!!!! Ef þið nennið ekki að reyna við sum borð...hér eru öll leyniorðin fyirir The classroom og The classroom 2.

779.jpg

nóvember 11, 2005

Hinn týpíski skóladagur

Í dag vaknaði ég því miður klukkan tvær mínútur í 8am. Ég paniceraði, og flýtti mér í föt, leðurjakka og skó, skellti svo á mig skólatöskunni og þaut út. Enginn tími til að borða eða neitt. Þegar ég kom rétt á tíma sat Assa við stærðfræðistofudyrnar. Ekki tangur né tetur sást af Dunno, vegna þess að hún var veik.

Eftir langan, stærðfræðitíma með ömurlegu kennslubókinni 8-tíu (einni af þessum nýju stærðfræðibókum sem geta ekki kennt almenna stærðfræði) var kominn tími á ensku. Við biðum örugglega í 10 mín. áður en pirraði gangavörðurinn var kominn og lét alla 8. bekkina fara í röð og ganga burt. Ég og Assa vorum tvö risastór spurningamerki, hvað í andskotanum var í gangi? Á leiðinni í matsalinn (já, við stefnud semsagt þangað?) Þar var eitthvað ´tónlist fyrir alla´(þegar þeir segja alla eiga þeir við alla 8.bekkinga.) Einhverjir gaurar ætluðu að taka nokkur þjóðlög, sem þeir gerðu. Þeir komu líka með eina draugasögu, og lög um það þegar stelpurnar syngja um strákana, og þegar strákarnir syngja um stelpurnar. Ég var mjög hrifin af ´stelpur syngja um strákana´lagið, enda var það einhvernveginn svoa: Það á að strýkja strákaling, hend'onum nið´rí kolaping, láta hann finna landfesting og láta hann svo hlaupa allt um kring.... Því miður sungum við svo hátt að diskókúlan uppi í loftinu gaf sig, og datt niður á gólfið. Loftið er fremur hátt í matsalnum og hún féll úr ca fjögurra metra hæð rétt á bakvið mig og Össu. Mér brá svo mikið að ég brást við á minn eigin hátt, og barði vatnsflöskunni minni í borðið sem við sátum við. Því miður gaf hún sig líka af öllum þunganum og allt vatnið skvettist yfir ákveðinn aðila sem skal verða nafnlaus. Eftir að gera mitt albesta við að sleppa frá matsalnum áður en að einhver náði mér og sendi mig skólastjórans, með Össu á hælunum hlupum við heim til mín og sóttum nestið mitt, þar sem ég hafði ekkert borðað í hálfan sólarhring og ekki haft nokkurn tíma til að borða nokkuð í morgun. Þegar við lögðum loksins af stað til baka þurftum við að borða nestið okkar á leiðinni þar sem við áttum engan tíma að missa. Þegar við komum aftur í skólann var komið að efnafræði, einu af mínum uppáhaldsfögum. Eftir þetta kláraðist skóladagurinn eiginlega bara mjög venjulega, ég þurfti auðvitað að fela mig fyirir kennurum og öðru starfsfólki, en annars er ekki eins og ég sé ekki vön svoleiðis shitt.

Þegar ég kom heim fór ég beint í tölvuna þangað til að ég fór í myndlistatíma, en þeir eru alltaf á föstudögum. Þar vorum við að læra að gera handrit við bíómyndir. Ég og vinufélgainn minn vorum að gera handrit um srták sem lendir í því að pabbi hans fær heilan bókaskáp ofan á sig. Mjög spennandi, eða þannig. En kennarinn lét okkur byrja á því að gera svona handrit, svo við drifum það af. Við náðum reyndar ekki að drífa það neitt mjög hratt af vegna þess að við urðum að vinna að handritinu á Mac-a, og hvorug okkar kunni neitt sérstaklega vel á þau tæki. (Nei, siriusly þetta var mjög óþægilegt!!!Til að gera ( þá þurfti ég að nota takkann þar sem er *, og það er ekki hægt að ýta á ´stroka út´ takkann og halda honum niðri, þú verður að ýta aftur og aftur fyrir hvern einasta staf!!!)Þegar ég kom heim fór ég auðvitað aftur í tölvuna til að blogga og tala við einhvern á msn....hey (sunglasses) var að koma inná!!!!

nóvember 10, 2005

I am not a nerd!!!

Halló allir, búin að vera alveg bilaður dagur auðvitað, ég kom einum tíma fyrr heim úr skólanum, (kl.12:45pm) fór svo beint að klára að horfa á My cousin Vinny sem ég hafði aldrei klárað daginn áður, síðan borðaði ég og ég ææætlaði að fara að læra, en áður en mér tókst að taka upp skóladagbókina heyrði ég í suðinu í tölvunni minni, og ég uppgötvaði að ég gæti aldrei látið hana bíða á meðan ég lærði, svo að ég fór í hana fyrst. Ég byrjaði á að opna iTunes og hlusta á uppáhaldstónlistina mína, en síðan opnaði ég Internetið, og fyrr en varði var ég búin að finna fullt af nýjum æðislegum Manga wallpaperum, og myndum, og var byrjuð að tala við 3 manns á msn. Ekki leið á löngu áður en að ég fann flottasta vetrar-wallpaper ever og búin að setja það beint á desktoppið. Því miður sást ekki í andlitið á einni persónunni á myndinni út af skjölum sem lágu þvert yfir desktoppið, og þess vegna tók ég til á því öllu, og setti öll myndaskjölin í My Pictures. Þar var auðvitað mjög mikið af myndum sem voru um allt í kringum hver aðra, og eins og skipulagsfíkillinn sem ég er fór ég að taka til í myndunum líka. Það tók sko sinn tíma, enda sortaði ég 142 myndir niður í 14 foldera. Svo talaði ég náttúrulega meira á msn, hlustaði ennþá og tónlistina, og sat og dáðist að nýja wallpaper-inu mínu á tandurhreina desktoppinu mínu sem sást varla nokkurt skjal á. Ég fattaði ekki hvað klukkan væri, eða það að ég ætti eftir að læra fyrren klukkan var orðin 4.

Til að gera langa sögu stutta þá gerði ég bara eitthvað í tölvunni svona þar til klukkan var farin að ganga sjö. Þá kláraði ég 2/3 af heimavinnunni vegna þess að ég fattaði ekkert í þriðju verkefnalýsingunni sem ég hefði skrifað í skóladagbókina dööögum áður.

Eftir það fór ég út, kl. ca 19:45pm og kom aftur inn kl. 20:35pm. Þá fór ég aftur í tölvuna að leita að prófi til að taka. Ég svaraði mjög hreinskilningslega og hér er niðurstaðan mín:


Your Inuyasha! You are a punk, you like to pick
fights and hate being in school, your grades
are slipping but you don't care, you are having
to much fun to actually do anything about it!


What Inuyasha Character are you?
brought to you by Quizilla

Hey!!! That´s only 35% true!!!Ok, You are a punk, you like to pick fights and hate being in school, er kannski satt, en your grades are slipping but you don't care, you are having to much fun to actually do anything about it! er algerlega rangt!!! Það virðist meira að segja vera svo að of margir Hagaskólanemar vita hvernig ég stend mig í skólanum, og kalla mig nörda!!!!! Það, eins og sumt sem sagt er hér fyrir ofan er ekki satt! Ég er kannski ágætisnemandi, en mér finnst samt ekki svo æðislega mikil skemmtun að vera í skólanum, og mér finnst hræðilegt að læra heima. Sumir halda greinilega að þetta sé ekki hægt, að vera framúrskarandi nemandi og samt hata að vinna heima og slíkt, en well it´s simply thanks to a talent which I have inherited from my father, hæfileikinn sem felst í því að geta staðið sig vel í skólanum, en lært samt heima á lágmarkstíma og samt fá 10.0 á prófum.

So I say what I have said before.....I AM NOT A NERD!!!!!!!!!!!!!!

nóvember 09, 2005

Einn skrýtinn þriðjudagur

Í dag var mjög bilaður skóladagur!!!!!!Það gerðist eitt alveg æðislegt, og annað alveg hræðilegt!Það hræðilega gerðist reyndar á undan, enda mjög algengt að fá alltaf slæmu fréttirnar fyrst. (Af hverju er það eiginlega?). Ég frétti að einn uppáhaldskennarinn minn var mjög veikur, og kæmi ekki aftur fyrr en eftir áramót, og eyddi líka öllum fyrri partinum af skóladeginum í mitt private ´mourning´. Hinsvegar þegar kom að Íslensku í öðrum tíma (svo fljótt!?) þá frétti ég að ég var sú eina af....fullt nemendum sem fengu 10.0 á ritgerðinni sem átti að gera um sjálfan sig. Ok, ég gladdist svolítið, en hinar slæmu fréttirnar sem ég fékk fyrst voru ennþá að valda mér áhyggjum. Hinsvegar, þegar ég hélt að þessi dagur mydi varla verða mikið skrýtnari þá þegar ég kom heim í hádeginu kom mamma heim með ömmu minni og Halldóri góðum vini okkar. Þau voru með pizzu, og dularfullan kassa með pappírssneplum. Það var greinilegt að þau voru að hittast núna til að ræða um kosningabaráttu hennar ömmu. Það var mjög fyndið að spjalla við þau, þau voru náttúrulega í voða miklu sköpunar-humor stuði og voru m.a. að reyna að finna slagorð fyrir ömmu. Það komu hugmyndir eins og: Hagur í hefvu, Fyrir fólkið í bænum og Fram fyrir frjálsan Kópavog. Ok, þau voru auðvitað að grínast, ég held að þau eigi eftir að nota Fyrir fólkið í bænum. Ég ákvað að ég fyndi örugglega ekki betra tækifæri til að deila fréttum mínum með móður minni seinna svo að ég sagði frá sjaldgæfu tíunni, og líka slæmu fréttirnar með kennarann minn. Amma sagði ekki mikið annað en að kennarinn minn hefði góða rithönd. Halldór sagði ekki neitt, enda var þrýstingurinn í kringum svona þunnt hefti af pappír alveg merkilegur, svo að hann fékk aldrei tækifæri til að sjá ritgerðina. Ég byrjaði svo að hjálpa Halldóri að útbúa pappírsmerki með auglýsingum sem átti að setja á einhvern veitingastað. Ég hlýt að hafa verið að standa mig ágætlega, af því að þegar ég minntist á í samræðunum að bráðum þyrfti ég aftur að fara í skólann, sagði Halldór að það gengi bara ekkert, og að hann gæti bara hringt og tilkynnt fyrir skólanum að ég myndi ekki mæta, og svo gæti ég haldið áfram að brjóta pappír. Mamma hálfhneyksluð hótaði Halldóri nokvurnveginn svona: ,,Halldór, dagurinn sem að þú hringir í Hagaskóla og segist vera pabbi Jóhönnu og tilkynnir að hún sé veik er dagurinn sem ég tala ekki aftur við þig.´´

Því miður varð raunin aldrei sú að Halldór hringdi, svo að innan skamms hélt ég aftur í skólann.

Eftir skóla fórum við Assa heim til Dunno til að ræða málin um tiltekið ´awkward´incident sem kom fyrir í skólanum. Raunin er að allur skólinn að svo er virðist er búin að skapa samsæri á móti okkur þrem, vegna þess að við stöndum okkur vel á prófum. (Hvernig eru þau samt viss um það!?). Eftir að hafa ákveðið ýmsa hluti, og fundið gælunafn á aðal-buggaran fórum ég og Assa heim. Ég fékk eins og ég hélt aldrei annað tækifæri til að tala við móður mína þann dag, vegna þess að hún er stanslaust að vinna í heimasíðum fyrir fólk, sér í lagi hundaeigendur. Meira um það seinna samt, ég er að fara að koma skipulagi á myndirnar sem ég sótti í dag (af hnífum og slíku).

Oh, in case if you were wondering, eftir óskipulagt kvöld með ristað brauð og skyr fyrir kvöldmat endaði þessi bilaði þriðjudagur.

: ) ; )

nóvember 03, 2005

My favorite store has reached out in the right time!!!

Í gær var fyrsti vetrarfríisdagurinn minn, og allan daginn var ég heima í náttfötunum mínum að passa bróður minn og við gerðum ekkert annað en að horfa á Simpson´s 12. eða 11. season. Öðru hvoru fór ég reyndar inn í herbergi í tölvuna og glímdi við SUDOKU þraut, sem ég held að sé eini stærðfræði leikurinn Í HEIMI sem að ég hef gaman að.

Auðvitað var mjög gaman að vera í fríi, en því miður er mjög erfitt fyrir manneskjur sem eru utan við sig, og annars hugar eins og mig að aðlagast nýjum aðstæðum. Í gær var miðvikudagur, og það þýðir að ég átti að fara í karate kl. 18:10, en strætisvagninn kemur kl. 18:42. Af því að ég var í fríi fannst mér eins og það væri bara laugardagur, en þá er ekki karate á þessum tíma (heldur kl. 12:00 að morgni) og ég fann ekki fyrir neinni þörf fyrir að æfa karate, og fattaði ekki að það væri karate fyrr en klukkan var orðin 18:34. Ég panic-eraði algerlega, og í einu hendingskasti var ég kominn í almennileg föt, með peninga í strætó og með karatedótið í höndunum. Ég þurfti að bíða alveg nógu lengi til að ná strætisvagningum, og var orðin alltof sein. Þegar ég loksins komst í karate sá ég hinsvegar alls ekki eftir því að hafa mætt. Við vorum að fella, og þegar það var búið raðaði kennarinn nokkrum krökkum upp í eins konar zig-zag röð. Við hin áttum að hlaupa á milli og framkvæma eina tækni hjá hverjum, og öskra í hvert skiptið. Hjá fyrsta átti að kýla í andlitið (ekki í alvörunni auðvitað), hjá næsta átti að kýla í magann (þá má snerta aðeins), í næsta átti að sparka í púða sem hann hélt á og að lokum átti maður að fella þann seinasta. Ég var eins og venjulega með þeim einu sem gerðu þetta með fullum hraða, og góðum öskrum, og ekki svona lélegum stelpu-öskrum úr leiðinlegu bíómyndunum, heldur góðu öskri sem hljómar eins og úr stráki (cool stráki, (eins og mér og vinir mínir) ekki aumingja. ; ). Það eina sem þarf er að breyta aðeins tónhæðinni, og það hef ég gert síðan að ég var óviti. ; )

Eftir æfinguna þurfti ég að taka strætó heim, en ég vildi ekk taka vagninn sem ég hef verið að taka nýlega vegna þess að hann fer ekki nógu nálægt heimili mínu. Þess vegna ákvað ég að reyna að taka nr. 11 á Hlemmi, og koma við í uppáhaldsbúðinni minni í leiðinni: Teiknimyndasögubúðina Nexus. Þetta ákvað ég einfaldlega út af því að ekkert kvöld hentaði betur. Ég var í fríi, og þá væri allt í lagi að villast, eða lenda í einhverskonar ævintýri og koma allt of seint heim. Auðvitað væri líka hægt að lenda í því á laugardegi, en þá, eins og ég sagði áðan er karate kl. 12:00 að morgni, og þá er mjög bjart og rólegt. Nei, það er miklu meira spennandi að lenda í einhverju svona þegar það er dimmt, drungalegt og hættulegt úti.

Að svo mæltu, til að gera langa sögu stutta (sem er örugglega of seint, er hún ekki svoítið löng?) hljóp ég niður á Hlemm og fór beint í Nexus.

Þegar ég kom þangað komst ég að því að það var heldur betur búið að breyta henni til hins betra!!!DVD og VHS rekkinn var örugglega tvöfalt stærri, og með miklu meira efni!Þar mátti finna Zelda season, Futurama, Simpsons, Inu Yasha og margt annað æðislegt!!!Ekki nóg með það, en það var líka komið meira teiknimyndasögu-gerðar dót. Í mjög langan tíma hafa verið til þarna kennslubækur um hvernig maður teiknar Manga. Nýlega hafa líka bætst við bækur sem kenna að lesa og skrifa japönsku, en núna voru komnir útlínupennar, breiðir og mjóir, fínir teiknipennar, tónablaðasett og æfingamyndir fyrir byrjendur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!(I´M IN HEAVEN!!!!!! : D)

Í langan tíma hef ég ekki komið í búðina (um það bil einn mánuð eða svo) en núna var ég kominn á akkúrat rétta tímanum!My favorite store had reached out in the perfect time!!!(Fyrir utan það að ég var ekki með neina peninga, og gat ekki keypt neitt af þessu!!!*sniff* :´( )

Að lokum vil ég bara segja að Nexus er æðisleg búð, og þægilegur staður til að vera á. Þar eru allir nytsamlegir hlutir fyrir utan matvörur og tölvur. Star Wars action fíkúrur, Japanskir DVD-diskar á sölu og leigu, teiknikennslubækur fyrir Manga og raunveruleikateikningar, Pokémon spil og mikilvægast af öllu uppáhalds myndasögurnar mínar Inu Yasha og xxxHolic!!!!!!!!!
homepagepro.jpg
180px-InuYashaVolume1.jpg