Síðan hvenær er 34 ára gamalt?
Í dag er búið að ríkja letilegur sunnudagur í lífi mínu. Ég er mjög used to að hafa alltaf nóg að gera (já, líka á sunnudögum og laugardögum) en í dag var ekki neitt annað að gera en að sitja heima hjá pabba og nota tölvuna hans til að blogga og spila tölvuleiki í nýja karategallanum. Hinsvegar breyttust hlutirnir þegar mamma kom og sótti okkur og fór með okkur til hennar snemma, en þá leið mér loksins eins og heima hjá mér.
Ég byrjaði á að ganga frá uppúr töskunum og taka til í herberbginu, og fór svo ÚT (hallelúja!) að kaupa mér batterí. Þegar ég kom inn aftur fór ég í tölvuna að leita að arrested developement wallpaper-i og msn icon-i. Eftir það fattaði ég að ég þyrfti að kaupa nesti fyrir haustferðina með bekknum daginn eftir. Þegar ég var kominn aftur heim frá bensínstöðinni, með kanelsnúða sat mamma í stól vafin í hvítt flísteppi fyrir framan sjónvarpið að horfa á sex and the city. Áður en ég náði að ganga með snúðana inn í eldhús heyrðist úr mömmu: ,,Jóhanna viltu gefa mér snúð?´´.
,,Já´´, sagði ég, en var á sama tíma mjög hissa á því að mamma skyldi hafa sagt þetta. Venjulega þegar hún horfir á sex and the city segir hún ekki neitt í a.m.k. fimm klukkutíma, og stundum átta ég mig ekki á því að fara uppí rúm fyrr en kl.eitt um nótt. Þegar ég var hinsvegar búin að gefa henni snúð og fá mér einn sjálf, spurði hún:,,Geturðu kannski líka gefið mér mjólkurglas?´´. Aftur játaði ég, og fór inn í eldhús, og komst að því að við ættum enga mjólk.
Þegar ég sagði mömmu þetta kom fát á hana, og hún leit út eins og heimsendir yrði á næstu fjórum mínútum. Ég sá strax að það síðasta sem hún vildi gera var að standa upp, fara út í búð og ná í mjólk. Hún hafði ekk einu sinni orku í að biðja mig um það, eða það grunaði mig eftir að hafa beðið í tvær sekúndur og ekki heyrt neitt frá henni. Eftir langa pínlega þögn, spurði ég loksins:,,Á ég að fara að kaupa mjólk?´´. Mamma safnaði saman kröftum í um sjö sekúndur til að snúa höfðinu og sagði:,,Nennirðu því?´´.
Á meðan hún sagði þetta setti hún upp saklusa hvolpaandlitið, en þess gerðist ekki þörf, því mig langaði ekkert meira en að fá að fara aftur út í næturmyrkrið. (Og ná í mjólk fyrir mömmu). Þess vegna játaði ég aftur og hljóp í gegnum svart nætur-haustmyrkrið í 10-11 til að kaupa mjólk.
Þegar ég kom til baka spurði ég: ,,Viltu ennþá glas af mjólk´´, mamma svaraði:,,Jáááá!!! og líka annann snúð!!!! snúð...´´ Á meðan ég útbjó mjólkurglas og náði í nýjan snúð hugsaði ég hvernig mamma yrði nú þegar hún yrði sextug, og ég væri 39 ára að vinna að nýjum tölvuleikjum ef hún væri svona "gömul" núna?
Maður spyr sig...og ég er ekkert mjög spennt að fá að vita það. Sérstaklega ekki þegar mamma sagði "þetta er bara forsmekkurinn , ég mun líklega bara versna."
Komment
Jesús! Hvernig verður mamma mín þá?!
Skrifaði Júlía | 26.09.05 05:56
Ég veit það ekki, en ég get nú alveg höndlað það.
Skrifaði The toptomboy | 26.09.05 06:08
mamma þín er ung! Mamma mín var 13 ára þegar mamma þín fæddist!
DE
Skrifaði Guess hwo... | 28.09.05 03:39
Yebb! Pretty amazing right! (wink smiley)
(sorry, ég þarf að fara að "inserta" brosköllum)
Skrifaði The toptomboy | 29.09.05 10:41