« Síðan hvenær er 34 ára gamalt? | Main | Today´s crazy dialog »

Þó að ég sé að leita að starfi....

...Þá er ég ekki svo "desperate" að fara að vinna gamla starfið mitt!

Þannig var að á verkfallstímabilinu var enginn skóli, en ég reyndist samt svo heppin að dagvistin í Melaskóla var opin, og ég gat farið með Dodda þangað þegar mig langaði að vera ein í friði með tölvunni og hjólinu. (Þ.e. hvern einasta dag).

En Doddi var kominn á það þroskastig að hann vildi fara að fara einn í "skólann" (í dagvistina). Ég er með alltof mikið ofsóknaræði til að leyfa honum það, svo ég sendi hann af stað einan, en elti hann án þess að hann sæi mig. Þegar ég var búinn að elta hann svona tvisvar, ráðfæði ég mig við mömmu, en komst að því að ofsóknaræðið er eitthvað sem ég erfði frá henni, svo hún borgaði mér fyrir að njósna áfram um Dodda í staðinn fyrir að leyfa mér að senda hann einan í dagvistina.

Really...nei takk. En ég vil heldur ekki passa börn, ég er bara alls ekki karakterinn fyrir það. Það sem mig langar helst til að gera er að fara að bera út blöð, þá þarf ég að vakna snemma, hlaupa úti í kuldanum með þungar birgðir...újeh það er miklu betra en að passa eða njósna um lítil börn, það er líka miklu betra borgað, það er fyrir mig!!!!!

Komment

Þú ert að grínast! Mér findist miklu meira spennandi að njósna um litla bróður sinn en að þurfa að dröslast upp eldsnemma á mognanna og fara út í kuldann til þess að bera út þungann stafla af dagblöðum! (Ég á í nógum vandræðum með að vakna í skólann!)

Ég veit ekki.... kannski er skemmtilegra að njósna en maður fær meira borgað fyrir að bera út....$$$ wink

Já, ég á ennþá eftir að venja mig á að vakna á morgnanna kl.6, enn mér finnst það þess virði fyrir launin sem ég fæ.

Hæ ég ber út b,löð og ég skal segja þér að það er ekki skemmtilegasta vinna í heimi!
Það er örugglega miklu skemmtilegra að njósna um lilla bróðurwink

Sæl elskan og til hamingju með heimasíðuna þín þú er vel ritfær og það verður gaman að lesa eftir þig. Er ekki betra að síðan heiti gælunafni ekki fullu nafni þínu?
Varðandi vinnuna þá
hef ég áhyggjur af því að þú verðir þreytt í skólanum og svo ertu ekki nógu vel klædd til að fara út í kuldann. Það er nógur tími til þess að verða rík. Svo má reyna að finna aðra vinnu ef allir leggjast á eitt þá kemur kannski eitthvað spennandi. En ég er nú bara amma þín

Já, það er kannski rétt að betri vinna komi til greina, og ég er tilbúin að finna hana. Annars er æðislegt að síðan er með Jóhanna Þórey, ég er nefnilega svo stolt af miðjunafninu mínu wink

Ég þarf samt að bíða róleg þar til að ég fæ broskarla hingað, og breytt útliti síðunnar, en mér finnst það ekkert hræðilegt.

Hæ og til hamingju með síðuna, þú ert alveg sami snilldarpenninn og pabbi þinn.
Og for god sake ekki fara að passa börn, það er nóg að þurfa að umgangast tvö yngri systkini..

Takk fyrir það, en hafðu skom ekki áhyggjur af því að ég fari að passa börn, vegna þess að mér finnst það svo leiðinlegt!!!!!!!

Hæ Joco!
Þú kannt sko að búa til heimasíðu allavegana gangi þér vel og það er ekekrt sérstaklega skemmtilegt að bera út þannig að ég mundi velja annann kost en það að bera út!
gangi þér vel að blogga meira wink
kv....domy sjáumst í you know....

Takk kærlega Domy, og...ég hef næstum því ekkert annað að segja fyrir utan að ég lofa að valda þér ekki vonbrigðum, og ég hlakka til að hitta þig í you know what!!!!!!! wink

Mér þætti skemmtilegra að elta lítinn bróður en að bera út blöð! Ég er allt of mikill letihaus til að vinna heimavinnuna mína og vaska upp!
Ég irði líka örugglega rekin firir að vera of oft veik! =S

Já, ég skil það vel....en það var bara svo illa launað, and in a job I´m really just in it for the money. Nema að ég væri að vinna við kassan í Nexus, eða vinna við að hjálpa ykkur Sunglasses með heimavinnuna eða eitthvað svoleiðis!!! ; )

Já, ég skil það vel....en það var bara svo illa launað, and in a job I´m really just in it for the money. Nema að ég væri að vinna við kassan í Nexus, eða vinna við að hjálpa ykkur Sunglasses með heimavinnuna eða eitthvað svoleiðis!!! ; )

Skrifaðu komment


smilie winky colgate happy boogie toungue
wahahahaha angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare