Main | október 2005 »

september 29, 2005

Þó að ég sé að leita að starfi....

...Þá er ég ekki svo "desperate" að fara að vinna gamla starfið mitt!

Þannig var að á verkfallstímabilinu var enginn skóli, en ég reyndist samt svo heppin að dagvistin í Melaskóla var opin, og ég gat farið með Dodda þangað þegar mig langaði að vera ein í friði með tölvunni og hjólinu. (Þ.e. hvern einasta dag).

En Doddi var kominn á það þroskastig að hann vildi fara að fara einn í "skólann" (í dagvistina). Ég er með alltof mikið ofsóknaræði til að leyfa honum það, svo ég sendi hann af stað einan, en elti hann án þess að hann sæi mig. Þegar ég var búinn að elta hann svona tvisvar, ráðfæði ég mig við mömmu, en komst að því að ofsóknaræðið er eitthvað sem ég erfði frá henni, svo hún borgaði mér fyrir að njósna áfram um Dodda í staðinn fyrir að leyfa mér að senda hann einan í dagvistina.

Really...nei takk. En ég vil heldur ekki passa börn, ég er bara alls ekki karakterinn fyrir það. Það sem mig langar helst til að gera er að fara að bera út blöð, þá þarf ég að vakna snemma, hlaupa úti í kuldanum með þungar birgðir...újeh það er miklu betra en að passa eða njósna um lítil börn, það er líka miklu betra borgað, það er fyrir mig!!!!!

september 25, 2005

Síðan hvenær er 34 ára gamalt?

Í dag er búið að ríkja letilegur sunnudagur í lífi mínu. Ég er mjög used to að hafa alltaf nóg að gera (já, líka á sunnudögum og laugardögum) en í dag var ekki neitt annað að gera en að sitja heima hjá pabba og nota tölvuna hans til að blogga og spila tölvuleiki í nýja karategallanum. Hinsvegar breyttust hlutirnir þegar mamma kom og sótti okkur og fór með okkur til hennar snemma, en þá leið mér loksins eins og heima hjá mér.

Ég byrjaði á að ganga frá uppúr töskunum og taka til í herberbginu, og fór svo ÚT (hallelúja!) að kaupa mér batterí. Þegar ég kom inn aftur fór ég í tölvuna að leita að arrested developement wallpaper-i og msn icon-i. Eftir það fattaði ég að ég þyrfti að kaupa nesti fyrir haustferðina með bekknum daginn eftir. Þegar ég var kominn aftur heim frá bensínstöðinni, með kanelsnúða sat mamma í stól vafin í hvítt flísteppi fyrir framan sjónvarpið að horfa á sex and the city. Áður en ég náði að ganga með snúðana inn í eldhús heyrðist úr mömmu: ,,Jóhanna viltu gefa mér snúð?´´.

,,Já´´, sagði ég, en var á sama tíma mjög hissa á því að mamma skyldi hafa sagt þetta. Venjulega þegar hún horfir á sex and the city segir hún ekki neitt í a.m.k. fimm klukkutíma, og stundum átta ég mig ekki á því að fara uppí rúm fyrr en kl.eitt um nótt. Þegar ég var hinsvegar búin að gefa henni snúð og fá mér einn sjálf, spurði hún:,,Geturðu kannski líka gefið mér mjólkurglas?´´. Aftur játaði ég, og fór inn í eldhús, og komst að því að við ættum enga mjólk.

Þegar ég sagði mömmu þetta kom fát á hana, og hún leit út eins og heimsendir yrði á næstu fjórum mínútum. Ég sá strax að það síðasta sem hún vildi gera var að standa upp, fara út í búð og ná í mjólk. Hún hafði ekk einu sinni orku í að biðja mig um það, eða það grunaði mig eftir að hafa beðið í tvær sekúndur og ekki heyrt neitt frá henni. Eftir langa pínlega þögn, spurði ég loksins:,,Á ég að fara að kaupa mjólk?´´. Mamma safnaði saman kröftum í um sjö sekúndur til að snúa höfðinu og sagði:,,Nennirðu því?´´.

Á meðan hún sagði þetta setti hún upp saklusa hvolpaandlitið, en þess gerðist ekki þörf, því mig langaði ekkert meira en að fá að fara aftur út í næturmyrkrið. (Og ná í mjólk fyrir mömmu). Þess vegna játaði ég aftur og hljóp í gegnum svart nætur-haustmyrkrið í 10-11 til að kaupa mjólk.

Þegar ég kom til baka spurði ég: ,,Viltu ennþá glas af mjólk´´, mamma svaraði:,,Jáááá!!! og líka annann snúð!!!! snúð...´´ Á meðan ég útbjó mjólkurglas og náði í nýjan snúð hugsaði ég hvernig mamma yrði nú þegar hún yrði sextug, og ég væri 39 ára að vinna að nýjum tölvuleikjum ef hún væri svona "gömul" núna?

Maður spyr sig...og ég er ekkert mjög spennt að fá að vita það. Sérstaklega ekki þegar mamma sagði "þetta er bara forsmekkurinn , ég mun líklega bara versna."

september 23, 2005

And now the story of a wealthy family who lost everything...

...and the one son who had no choice but to keep them all together.

It´s arrested developement.

Svona byrjar hver einasti þáttur í fyndnustu þáttaröð sem ég hef séð.
Þeir eru svo óeðlilega fyndnir að það er óeðlilegt.
Þeir eru um eins og sagt var ríka fjölskyldu sem tapaði öllu og pabbinn er handtekinn fyrir "létt landráð" og fyrir að nota peninga frá fjölskyldufélaginu í sín persónulegu mál. Miðjusonur hans Michael reynir sitt besta við að bjarga félaginu þeirra, en það reynist alls ekki auðvelt, meðan hann er með öll gráðugu systkyni sín í kringum sig, og svo ekki sé minnst á móður hans með öll sín félagslegu vandamál.

Systkyni hans eru eldri bróðir hans GOB (eða George Oscar Bluth) sem er einn lélegasti galdramaður í heimi, og svo er það tvíburasystir hans Lindsay sem er atvinnulaus, löt gella. Síðast en ekki síst er það yngri bróðir hans Buster sem er 32 ára ofverndaður maður sem býr enn hjá mömmu sinni. Fjölskyldunni hefur grunað að það vanti eitthvað í hann síðan hann hélt að það bláa á kortinu væri land (eftir að hafa verið á námskeiði í kortalestri).
Með þessa brjáluðu og gráðugu fjölskyldu sína í kringum sig er Michael endalaust að reyna að bjarga fyrirtækinu og frelsa föður sinn úr fangelsi, og líka endalaust að mistakast, og ef þið hafið lesið allt sem stendur að ofan þá eruð þið ekki hissa.
Þessir þættir eru mjög vinsælir, og hafa unnið fjölda verðlauna í Bandaríkjunum og er sagt um fjölskylduna á netinu: This family has definitley put the fun back in dysfunctional.

Boojah!!!!!arrested_1.jpg