www.anna.is
jokes
These jokes are funny. I just threw in a couple of bad ones for comparison.
ravings song movie jokes cv
Nýi ritarinn

"Sæll, hvernig hefurðu það?" spyr annar.

"Fínt," svarar hinn og bætir við, "til hamingju með nýja ritarann. Hún er geðveikt flott maður!"

"Takk fyrir það," segir sá fyrri og bætir við: "Hvort sem þú trúir því eða ekki, þá er þetta vélmenni."

"Ekki séns, hvar fékkstu svoleiðis?"

"Þetta er glænýtt módel beint frá Japan. Ég skal sýna þér hvernig hún virkar. Ef ég kreisti hægra brjóstið, býr hún til kaffi. Ef ég kreisti það vinstra, þá skrifar hún fundargerð. Og það er ekki allt. Hún virkar líka sem kynlífsdúkka!"

"Nei, nú ertu að grínast?"

"Neibb, aldeilis ekki. Viltu prófa?"

Hinn heldur það nú og tekur hana með sér á klósettið. Allt gengur vel framan af, en eftir dágóða stund heyrast ægileg sársaukavein: "Eaaaaaaaaa... hjálp! Neeeeeeeiiiii."

"Ónei," hugsar eigandinn upphátt, "ég gleymdi að segja honum að rassinn á henni er yddari!


| permalink |
Útigangsmaðurinn

Jonni var stöðvaður af útigangsmanni um daginn, sem lyktaði illa, gekk í lörfum og uppfyllti ímyndina af slíku fólki á allan annan hátt. Vesalingurinn var að sníkja af honum pening.

Tók Jonni upp veskið, dró úr því tvöþúsund kall og spurði útigangsmanninn hvort hann vildi ekki kaupa sér bjór fyrir þetta í staðinn fyrir mat?
,,Nei það geri ég ekki, ég hætti að drekka fyrir mörgum árum.” – svaraði hann.

,,Viltu ekki frekar nota þetta smáræði til þess að fara að veiða – frekar en að kaupa mat? spurði Jonni í framhaldinu.
,, Nei ég sólunda ekki tíma mínum í slíkan óþarfa” - var svarið.

,,Viltu þá ekki eyða þessu í reiðtúr?” spurði Jonni.
,,Ertu vitlaus maður – ég hef ekki farið á hestbak í 20 ár”

,,En hvað um að kaupa þér kjöltudans eða mellu eða eitthvað svoleiðis – ég bæti við penging ef þarf ?”
,,Ég fæ nú bara einhverja sjúkdóma út úr svoleiðis vitleysu!” Svaraði sá heimilislausi.

Þá sagði Jonni þessum ógæfusama manni að hann ætlaði ekki að gefa honum neina peninga – heldur vildi hann bjóða honum heim með sér í þennan líka dýrindis kvöldverð hjá konunni.
Þá varð vesalingurinn frekar hissa og spurði Jonna hvort hann héldi ekki að konan yrði reið að draga þennan líka flækinginn inn í húsið – sem bæði lyktaði illa og væri svo illa til fara að engu húsi væri bjóðandi.

Þá sagði Jonni honum að það væri hið besta mál – væri allt í lagi. – Það væri mikilvægt fyrir konuna að sjá hvernig maður liti út sem væri hættur að drekka, veiða, ríða út og stunda kynlíf.


| permalink |
Á Vesturlandsveginum

Lögregluþjónn stöðvaði mann á nýjum Mersedes Benz á Vesturlandsvegi og auk ökumanns, sem var virðulegur eldri maður, var konan hans í bílnum.

Lögreglumaðurinn: "Þú ókst að minnsta kosti á 120 km hraða og veist væntanlega að leyfilegur hámarkshraði er aðeins 90 km á klst."
Maðurinn: "Nei þetta er ekki rétt hjá þér, ég var á tæplega 100."
Konan: "Láttu ekki svona elskan mín, þú varst á 140, ég sá það."

Lögreglumaðurinn: "Ég þarf að taka fram á sektarmiðanum að annað bremsuljósið er brotið."
Maðurinn: "Brotið bremusljós? Ég vissi það ekki!"
Konan: "Æ, elskan mín, þú veist alveg að það er búið að vera brotið í nokkrar vikur."

Lögreglumaðurinn: "Ég þarf líka að taka fram að þú hafir ekki verið með öryggisbelti."
Maðurinn: "Heyrðu, láttu nú ekki svona ég losaði mig úr beltinu þegar þú stoppaðir mig."
Konan: "Elsku dúllan mín, ekki rugla svona, þú notar aldrei öryggisbeltið."

Maðurinn var greinilega orðinn frekar pirraður á konunni, snýr sér að henni og öskrar:
"Reyndu nú að þegja einu sinni!"

Lögreglumanninum fannst þetta nokkuð skondið, snéri sér að konunni og spurði:
"Frú, talar maðurinn þinn alltaf svona við þig?"

Konan: "Nei Jesús, nei! Bara þegar hann er fullur."


| permalink |
Í Þykkvabænum

Gamall maður bjó einn í Þykkvabænum. Hann langaði til þess að stinga upp kartöflugarðinn en það var of mikil erfiðisvinna fyrir hann. Sonur hans, Bubbi, var sá sem hjálpaði honum venjulega en Bubbi sat á Hrauninu. Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá vandræðum sínum:

"Elsku Bubbi minn. Mér líður hálf-illa því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið. Ég er að verða of gamall til þess að stinga upp beðin. Ef þú værir hérna ætti ég ekki í neinum vandræðum því ég veit að þú mundir stinga upp beðin fyrir mig. Áttu von á helgarleyfi bráðlega?
Kær kveðja elsku sonur, pabbi."

Eftir örfáa daga, fékk hann bréf frá syni sínum:
"Elsku Pabbi Í GUÐANNA BÆNUM EKKI STINGA UPP GARÐINN!
Ég gróf dópið og byssurnar þar!
Þinn Bubbi. "

Í birtingu morguninn eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti Ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum, en fundu hvorki dóp né byssur. Þeir báðu gamla manninn afsökunar og hurfu á braut.

Sama daginn fékk hann annað bréf frá syninum:
Elsku pabbi. Við núverandi aðstæður gat ég ekki gert betur.
Þinn elskandi sonur Bubbi.


| permalink |
Seint heim

Tveir giftir sitja á barnum og eru að spjalla saman.

"Ég skil ekkert í þessu, í hvert skiptið sem ég fer heim af barnum þá slekk ég á aðalljósunum á bílnum og læt hann renna hljóðlega inn í innkeyrsluna. Ég passa að skella ekki hurðinni og læðist á sokkunum upp stigann, fer úr fötunum áður en ég kem inní svefnherbergi og leggst varlega í rúmið. Samt æpir konan mín á mig að ég eigi ekki að koma svona seint heim því ég veki hana alltaf!"

"Iss" segir hinn. "Þú ert að gera þetta alveg vitlaust. Þegar ég fer Heim þá stilli ég á háu ljósin þegar ég kem inn götuna og skransa inn í bílastæðið og flauta. Ég skelli hurðinni og hleyp upp stigann, hossa mér uppí rúm, slæ hana á rassinn og segi ER MÍN GRÖÐ NÚNA?"

"Það bregst ekki.. hún þykist alltaf vera sofandi."


| permalink |
Hann Jónas...

Jónas var staddur á veitingahúsi í Borginni og var að fá sér að borða þar.

Hann fór að ræða við þjóninn sem þjónaði honum og trúði honum fyrir því að hann væri með alveg ótrúlegt lyktarskyn. Hann gæti þekkt hvaða lykt sem væri, hversu lítið sem væri af henni.

Þjónninn dró þessa staðhæfingu í efa, svo Jónas bauð honum að prófa sig. Þjónninn fór þá inn í eldhús, tók hreinan disk og veifaði honum í góða stund yfir einum pottinum. Síðan fór hann með hann inn og rétti Jónasi. Jónas þefaði vel af diskinum og sagði svo "Lambakjöt með dilli og örlítilli mintu!"

Þjónninn varð forviða, en vildi prófa aftur. Nú veifaði hann diskinum yfir öðrum potti og rétti síðan Jónasi. "Blandað grænmeti!" sagði Jónas.

Nú ákvað þjónninn að gera eitthvað verulega erfitt, svo hann brá diski undir pils stúlkunnar sem var að vaska upp og fór svo með hann til Jónasar.

Jónas þefaði af diskinum, hleypti brúnum af undrun og þefaði aftur. Í þriðja sinn þefaði hann vel og lengi en sagði svo "Er Magnfríður Jónatansdóttir frá Merkigili að vinna hérna?"


| permalink |
Hjá Kára

Fimm mannætur fengu vinnu í líftæknifyrirtæki.

Þegar forstjórinn tók á móti þeim sagði hann: "Þið eruð núna hluti af liðsheild okkar. Hér getið þið haft góð laun og fengið að borða í matsalnum. Þess vegna langar mig að biðja ykkur að láta starfsfólkið í friði."

Mannæturnar lofuðu öllu fögru.

Fjórum vikum seinna kom forstjórinn og sagði: "Þið eruð allir mjög duglegir við vinnu ykkar og ég er mjög ánægður með hvernig þið hafið leyst ykkar verk af hendi. Það eina sem er að, er að nú er húsvörðurinn okkar horfinn. Vitið þið nokkuð um það?"

Mannæturnar hristu höfuðið og sögðust ekkert vita um hann.

Þegar forstjórinn var farinn sagði foringi mannætanna "Jæja, hver ykkar át húsvörðinn?"

Einn hinna fjögurra rétti hikandi upp höndina.

"Bölvaður asni geturðu verið, þrumaði foringinn. Í fjórar vikur höfum við étið hópstjóra, verkstjóra, verkefnisstjóra og deildarstjóra og enginn hefur tekið eftir neinu, svo kemur þú upp um okkur með því að éta einhvern sem skiptir máli !!!


| permalink |
Árekstur

Tveir einstaklingar óku bílum sínum, um var að ræða konu og mann. Slysin gera ekki boð á undan sér eins og í þessu tilfelli en bílar þeirra skullu skyndilega saman.

Lánið lék við þau en þau sluppu ómeidd eftir þennan annars harða árekstur. Konan rankar við sér felmtri slegin, skríður úr bíl sínum og segir: "Svo, þú ert þá karlmaður, en spennandi. Og ég er kona. Vá, sjáðu bílana okkar! Þeir eru gjörsamlega í klessu, en sem betur fer slösuðumst við nú ekkert. Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði um að okkur sé ætlað að hittast aftur, vera vinir og búa saman í friði til æviloka."

Upp með sér stamar maðurinn loks út út sér: "Ó,já, ég er þér alveg hjartanlega sammála!" "Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði!" hélt konan áfram, ég meina sjáðu, þetta er annað-kraftaverk. Bíllinn minn er algjörlega í klessu en þessi vínflaska brotnaði ekki. Guð vill örugglega að við drekkum þetta vín og höldum þannig upp á heppni okkar og yndislega sameiginlega framtíð sem við eigum í vændum."

Síðan réttir hún manninum flöskuna. Hann kinkar kolli til samþykkis, opnar flöskuna og drekkur hana hálfa og réttir síðan konunni. Konan tekur flöskuna, setur tappann í og réttir manninum hana aftur. Maðurinn spyr: "Ætlar þú ekki að fá þér?" Konan svarar: "Nei. Ég held ég bíði bara eftir lögreglunni..."


| permalink |
Í Kaupfélaginu

Nemandi úr Viðskiptaháskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í Kaupfélagi úti á landi. Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og athuga hvernig hefði gengið.

Kvöldið eftir spurði hann unga manninn hvað hafði hann afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. "Bara einn," sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið.

Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund" sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann.
"Hvað seldirðu honum eiginlega, rasaði kaufélagsstjórinn hissa? "
Jú, sjáðu til,"sagði drengurinn, "fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Landróver. "

Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði:
"Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl."

"Nei, nei," sagði strákurinn. "Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða!"


| permalink |
Blindur maður á bar

Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér í glas. Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann í barþjóninn: - Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?

Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: - Áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast – af því að þú ert nú blindur – að ég fræði þig um fáein atriði:
1. Barþjónninn er ljóshærð kona.
2. Útkastarinn er ljóshærð kona.
3. Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate. Og ég er ljóshærð.
4. Konan við hliðina á mér er ljóshærð og er Íslandsmeistari í lyftingum.
5. Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er Íslandsmeistari í vaxtarrækt.
Hugsaðu þig nú vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?

Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið og segir: - Nei, ætli það. Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum.


| permalink |
Nonni litli

Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla. Dag einn var samfélagsfræði og kennarinn spurði krakkana hvaða atvinnu pabbar þeirra stunduðu.

Feður krakkanna í bekknum reyndust vera lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður. Einn vann í verslun og annar var slátrari. Á meðan krakkarnir sögðu frá feðrum sínum tók kennarinn eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og reyndi að láta lítið fyrir sér fara.

"Hvað gerir hann pabbi þinn?", spurði kennarinn Nonna litla.

Eftir nokkuð hik sagði Nonni litli: "Pabbi dansar allsber fyrir framan aðra kalla á skemmtistað á kvöldin og á næturnar og græðir fullt af peningum á því að fara með mönnum út í port og dansa einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur."

Kennaranum brá og í miklu fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita. Nonna litla tók hann afsíðis.

"Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn... dansinn og allt það?"

"Nei, nei", sagði Nonni litli feiminn. Pabbi vinnur sko hjá Kaupþingi-Búnaðarbanka en ég þorði bara ekki að segja það fyrir framan hina krakkana.


| permalink |
Lögfræðingurinn og löggan

Lögfræðingur einn keypti sér glænýjan BMW og gat ekki beðið eftir að sýna félögum sínum gripinn, en þegar hann opnar hurðina á bílnum fyrir utan skrifstofuna sína kemur trukkur á fullri ferð og rífur hurðina af bílnum.

Lögfræðingurinn stekkur út og öskrar NEEEIIIII!

Stuttu síðar mætir lögregla á svæðið. Lögfræðingurinn öskrar á lögreglumanninni:

FÍFLIÐ Á TRUKKNUM KEYRÐI HURÐINA AF BMW-inum MÍNUM!!!

"Þú ert lögfræðingur er það ekki" sagði löggan.

"Jú, hvernig vissir þú það" svaraði lögfræðingurinn furðu lostinn.

"Eina fólkið sem ég veit um sem er svona upptekið af veraldlegum gæðum eru lögfræðingar. Ég þori að veðja að þú tókst ekki einu sinni eftir því að það vantar á þig vinstri hendina".

Lögfræðingurinn leit á hliðina á sér og öskraði "NEEEEIII! ROLEX ÚRIÐ MITT!!!"


| permalink |
Gamla konan og hatturinn

Gömul kona stóð í stefni skemmtiferðarskipsins.

Hún hélt fast í hattinn sinn svo hann fyki ekki brott með vindinum. Herramaður gekk til hennar og sagði "Fyrirgefðu frú, en vissir þú að kjóll þinn blæs upp í þessum vindi?

"Já ég veit það", sagði konan, "Ég þarf að nota báðar hendurnar til þess að halda hattinum á sínum stað." "En frú mín, þú hlýtur að átta þig á því að hið allra helgasta blasir við þeim fjölmörgu sem standa hér", sagði herramaðurinn kurteislega.

Gamla frúin leit niður, og síðan á herramanninn og svaraði;
"Góði minn, allt sem þú sérð þarna niðri er 85 ára gamalt. Þennan hatt keypti ég í gær."


| permalink |
Hraðaakstur

Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes til að halda uppá það að konan hans fór frá honum.

Hann ákvað að fara í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra. Topplúgan var dregin niður og vindurinn blés í þessi þrjú hár sem enn prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.

Djö... þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens hugsaði hann og hann gaf í... þegar löggan var byrjuð að nálgast aftur gaf okkar maður aftur í.. en skyndilega tók skynsemin völdin, hann hægði á og keyrði út í vegarkantinn.

Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn:
"Þetta hefur verið langur vinnudagur" sagði löggan "ég er að ljúka vaktinni og það er föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga á yfirvinnu.
Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum ofsahraða sem þú fórst á, betri afsökun en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta sinn"

Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks:
"Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni og ég varð allt í einu svo logandi hræddur um að þú værir að skila henni"

"Góða helgi" sagði löggan


| permalink |
Blátt eista

"Ég held að eitthvað alvarlegt ami að mér", sagði Guðmundur við lækninn sinn.
"Annað eistað á mér er orðið blátt á litinn"

Læknirinn skoðaði Guðmund vandlega og komst að þeirri niðurstöðu að það yrði að fjarlægja eistað til að bjarga lífi hans. Læknirinn var þó góða stund að sannfæra Guðmund um nauðsyn þess. Tveimur vikum eftir aðgerðina kom Guðmundur aftur og sagði skelfdur við lækninn að nú væri hitt eistað orðið blátt.

"Við neyðumst til að nema það í burtu líka", sagði læknirinn alvarlegur á svip.
"Annars getur þú dáið".
Tvær vikur liðu og enn var Guðmundur kominn til læknisins.
"Nú hlýtur eitthvað hryllilega alvarlegt að vera að mér því lillinn er orðinn kolblár á litinn!", sagði Guðmundur á barmi taugaáfalls.

Læknirinn skoðaði hann vandlega og felldi síðan þann dóm að ef Guðmundur ætlaði að halda lífi yrði að skera vininn af.
"Hvernig fer ég þá að því að pissa ef þú skerð hann af," kveinaði Guðmundur.
"Við setjum bara plastslöngu í staðinn," sagði læknirinn hughreystandi.

Guðmundur fór í aðgerðina og allt gekk vel. Innan nokkurra vikna var hann þó, enn og aftur, mættur á skrifstofu læknisins. Nú var hann reiðilegur á svip.
"Læknir, plastslangan er orðin blá! Hvað er eiginlega í gangi?"
Læknirinn fórnaði höndum af undrun og tók til við að rannsaka Guðmund.

"Hmmm," sagði hann eftir smástund.
"Getur verið að gallabuxurnar þínar láti svona mikinn lit?"


| permalink |
Lögfræðingurinn og ljóskan

Lögfræðingur og ljóska sitja hlið við hlið í flugvél, lögfræðingurinn stingur uppá að þau bregði á leik á leiðinni.

Ljóskan er þreytt og vill frekar sofa, en lögfræðingurinn er þrjóskur og tuðar í ljóskunni. Hann útskýrir: "Sko, ég spyr þig spurningar og ef þú veist ekki svarið, þá borgar þú mér og svo öfugt." Aftur afþakkar ljóskan og reynir að sofna.

En lögfræðingurinn gefst ekki upp svo hann gerir henni tilboð: "Allt í lagi, í hvert skipti sem þú veist ekki svarið þá borgar þú mér 500kr en ef ég veit ekki svarið þá borga ég þér 50.000kr, ha hvernig líst þér á það." Þetta hljómar vel og ljóskan samþykkir að taka þátt.

Lögfræðingurinn spyr: "Hvað er langt frá jörðunni til tunglsins?" Ljóskan þegir, teygir sig í budduna sína og réttir honum 500kall. En svo spyr ljóskan:" Hvað fer uppá fjall með þrjá fætur en kemur niður með fjóra?"

Lögfræðingurinn horfir á hana alveg kjaftstopp. Hann tekur upp fartölvuna sína og fer að leita á netinu, mailar á vini sína en allt kemur fyrir ekki. Eftir klukkutíma eða svo játar hann sig sigraðan og borgar henni 50.000kall, ljóskan tekur peninginn og fer að sofa.

Lögfræðingurinn er nú ekki alveg sáttur við þessi málalok og hnippir í ljóskuna og krefst svars við þessari spurningu.

Ljóskan snýr sér að honum teygir sig í budduna sína og réttir honum 500kall.


| permalink |
Sáðprufa

85 ára gamall maður fór til læknisins til að láta taka sáðprufu.
Læknirinn lét manninn hafa glas með sér heim og bað hann um að koma tilbaka daginn eftir með prufuna.
Næsta dag kemur sá gamli til læknisins og lét lækninn hafa tómt glasið eins og hann fékk það deginum áður. Læknirinn spurði karlinn þá hverju sætti og bað hann um útskýringar.
"Já doksi, þetta gerðist svona – fyrst reyndi ég með hægri hendinni og svo reyndi ég vinstri en ekkert gerðist.

Þá bað ég konuna að hjálpa mér.Hún reyndi fyrst með hægri og síðan vinstri hendinni eins og ég hafði gert en án árangurs.
Hún reyndi einnig með munninum,fyrst án tanna og svo með tönnunum en ekkert gerðist.
Við ákváðum þá að tala við nágrannann hana Önnu ,hún reyndi þetta líka fyrst með báðum höndum í einu og svo reyndi hún meira að segja líka að kreista á milli hnjánna en ekkert gerðist."

Lækninum var mjög brugðið ”Spurðir þú virkilega nágrannann ?”


”Jebb” svaraði sá gamli. Og sama hvað við reyndum tókst okkur ekki að opna glasið.


| permalink |
Að skrópa í vinnunni...

Þórhallur prestur vaknar á sunnudagsmorgni og sólin skín. Hann ákveður
að í dag ætli hann að segjast vera veikur og hann komist ekki til messu.
Svo hann hringir í annan prest, tilkynnir veikindin, nær svo í
golfsettið sitt og læðupokast upp á golfvöll í þeirri von að enginn sjái
hann. Á vellinum er ekki nokkur maður svo ráðabrugg Þórhalls prests
ætlar að ganga upp. Uppi í Himnaríki snýr Lykla-Pétur sér að Guði og
spyr: "Guð, ætlarðu að láta vígðan manninn komast upp með þetta?" Guð
horfir niður á Þórhall prest þar sem hann slær teighöggið. Kúlan flýgur
420 metra í fallegum boga, skoppar einu sinni á flötinni og rennur svo
beina leið ofan í holuna! Kraftaverkahögg! Lykla Pétur lítur
skilningsvana á Guð og spyr: ,,Hversvegna í ósköpunum léstu hann fara
holu í höggi?" Drottinn svarar: ,,Hverjum á hann að segja frá þessu?!"


| permalink |
Kosningar 2003

Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?"
Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á
þennan hátt:
Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina. Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman. þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagði honum.

Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.

Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.
Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. þá sagði Nonni litli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít...


| permalink |
Páfagaukurinn

Sverrir fékk páfagauk í afmælisgjöf og komst fljótt að því að sá var
með afbrigðum skapvondur og orðljótur.

Sverrir gerði allt sem honum datt í hug til að venja fuglinn af þessum ósið,
hann notaði sjálfur eintóm kurteisisorð, spilaði hugljúfar ballöður fyrir hann
og reyndi með því að sýna honum gott fordæmi. Ekkert virtist ganga upp.

Hann prófaði að skamma fuglinn, sem svaraði honum fullum hálsi.
Hann hristi búrið en gaukurinn varð bara enn skapverri og dónalegri við það. Sverrir vissi nú ekki sitt rjúkandi ráð og í örvæntingu sinni tók hann fuglinn og setti hann í frystikistuna.

Um stundarsakir heyrðust ógurleg læti úr kistunni, fuglinn sparkaði og öskraði og bölvaði ---- en skyndilega datt allt í dúnalogn og ekki eitt einasta hljóð heyrðist í langan tíma.

Sverrir fór nú að óttast að hann hefði meitt fuglinn og flýtti sér að opna kistuna. Páfagaukurinn var hins vegar hinn rólegasti, steig upp á útrétta hönd Sverris og sagði: "Að undanförnu hefur hegðun mín og orðbragð ekki verið til eftirbreytni og sennilegast orðið til að móðga þig. Ég mun þegar í stað taka mig rækilega á og breyta þessari hegðun minni. Mér þykir verulega leitt hvernig ég hef látið og mig langar til að biðja þig innilega fyrirgefningar."

Sverrir varð orðlaus af undrun og var um það bil að fara að stama upp spurningu um hvað hefði valdið breytingunni þegar páfagaukurinn hélt áfram: "Bara svona fyrir forvitnis sakir, hvað gerði kjúklingurinn eiginlega?"


| permalink |
Jónas önd

Önd labbar inn á bar og pantar bjór. Jónas barþjónn sagði
"Hey, þú ert önd!"
"Þú ert með góða sjón." sagði öndin.
"Já, en - þú getur TALAÐ!" sagði Jónas barþjónn.
"Og heyrir bara vel líka," sagði öndin.
"Hey, þetta er bar! Gæti ég fengið hálfan lítra af bjór?"
Jónas kom með bjórglasið fyrir öndina og spurði hana
hvað hún væri að gera þarna.
"Sko," sagði öndin, "Ég er að vinna í byggingavinnu í húsinu hinum megin
við götuna. Við verðum þar í nokkrar vikur og ég ætla að koma hingað inn
í hádeginu á hverjum degi og fá mér bjór."
Og á hverjum degi vagaði öndin yfir götuna og inn á barinn hans Jónasar
og fékk sér bjór í hádeginu.
Vikan leið og dag nokkur kom sirkus í bæinn. Eigandi sirkussins kom inn
á barinn hans Jónasar til að fá sér bjór og Jónas sagði honum frá
öndinni. "Þú ættir að reyna að fá hana í sirkusinn," sagði Jónas. "Þú
gætir grætt heilmikið á því að sýna svona talandi önd. Ég skal nefna
þetta við hana næst þegar hún kemur inn."
Daginn eftir kom öndin eins og venjulega til að fá sér bjórinn sinn.
Jónas sagði við hana "Veistu, það er sirkus í heimsókn í bænum og í gær
talaði ég við sirkuseingandann. Hann hafði rosalegan áhuga að fá þig í
vinnu." "Er það?" sagði öndin.
"Já. Þú gætir haft gott uppúr því að vinna hjá honum. Ég get reddað því
fyrir þig."
"Bíddu aðeins," sagði öndin. "Þú sagðir SIRKUS, var það ekki?"
"Jú."
"Það er svona sýningarfyrirbæri í tjaldi, er það ekki? Með svona rosa
súlu í miðjunni?"
"Já."
"Og tjaldiðð er úr dúk, er það ekki?"
"Jú, auðvitað," sagði Jónas barþjónn. "Ég get útvegað þér djobb í
sirkusnum og þú gætir byrjað á morgun. Sirkuseigandinn var rosalega
áhugasamur um það."
Öndin horfði furðu lostin á Jónas. "Andskotan ætti hann að gera með
múrara?"


| permalink |
Vinkonurnar

Hópur vinkvenna var saman í frí þegar þær gengu fram á fimm hæða hótel, en fyrir ofan innganginn var ljósaskilti sem á stóð ,,Aðeins fyrir konur". Þar sem eiginmenn og kærastar voru ekki með í för ákváðu þær að kíkja í heimsókn og þegar inn var komið tók á móti þeim hinn myndarlegasti þjónn sem útskýrði leikreglurnar fyrir þeim:

,,Þið farið upp eina hæð í einu og lesið á skiltin sem eru á hverri hæð, en þau segja hvað boðið er uppá. Um leið og þið finnið það sem þið eruð að leita að megið þið gista þar."

Vinkonurnar byrjuðu nú að arka upp stigana og þegar á fyrstu hæðina var komið mátti sjá skilti sem á stóð: ,,Hér eru allir mennirnir með þá stutta og mjóa." Vinkonurnar hlógu af þessu og héldu upp á næstu hæð.

Á skiltinu á annari hæðinni mátti lesa:
,,Hér eru allir mennirnir með þá langa og mjóa."
Það var enn ekki nógu gott og því afréðu konurnar að fara upp á þriðju hæð, en þar var skilti sem á stóð:
,,Hér eru allir menn með þá stutta og svera."

Enn urðu konurnar fyrir vonbrigðum en þar sem enn voru tvær hæðir eftir héldu þær vongóðar upp á fjórðu hæðina. Og viti menn, uppi á fjórðu hæðinni var skilti eins og það átti að vera: ,,Hér eru mennirnir með þá langa og svera."

Konurnar voru nú orðanar allar spenntar og voru í þann mund að fara inn þegar þær mundu eftir að það var ein hæð eftir. Gerðust þær nú forvitnar um hvað í ósköpunum gæti verið boðið upp á þar og stormuðu þær því allar upp á fimmtu hæðina þar sem stóð á skilti:
,,Hér eru engir menn. Þessi hæð var byggð til að sanna að það er ekki hægt að gera konur ánægðar.


| permalink |
Kossaför

Frá því var skýrt í útvarpi í Bandaríkjunum nýlega að í miðskóla í Oregon hefði komið upp sérkennilegt vandamál. Margar stúlknanna í skólanum voru farnar að nota varalit og báru hann á sig inni á á klósettinu. Það var svo sem í allt lagi, en eftir að þær höfðu borið litinn á varirnar þá gerðu þær það að venju sinni að þrýsta þeim á spegilinn og skilja eftir sig fjöldan allan af kossaförum. Skólastýran sá að við svo búið mátti ekki standa og eitthvað yrði til bragðs að taka.

Hún kallaði því allar stúlkurnar inn á klósettið þar sem þær hittu fyrir húsvörðinn. Hún útskýrði fyrir þeim að þessi kossaför væru farin að skapa mikið vandamál fyrir hreingerningafólkið, sem varð að þrífa spegilinn á hverju kvöldi. Til þess að sýna þeim hversu erfitt það var, þá bað hún húsvörðinn að þrífa spegilinn. Hann náði í langan þvottakúst, dýfði honum ofan í klósettið og þreif síðan kossaförin af með honum. Síðan hefur ekki eitt einasta kossafar sést á speglinum.


| permalink |
Unga brúðurin

Eldri maður giftist mun yngri konu og voru þau mjög ástfangin. Gallinn var þó sá að hversu mikið sem þau reyndu gat maðurinn ekki veitt spúsu sinni fullnægingu í rúminu.

Ákváðu þau því að leita til læknis. Sá hafði ráð undir rifi hverju og eftir að hafa hlustað á söguna ráðlagði hann þeim að ráða til sín ungan og glæsilegan mann. "Á meðan þið njótið ásta skuluð þið fá hann til þess að veifa handklæði yfir ykkur. Ímyndunarafl konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fá sterka fullnægingu."

Hjónin ákváðu að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu.

Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn. Hann ráðlagði þeim að skipta um hlutverk. "Nú skuluð þið fá unga manninn a til að nóta ástar með konunni á meðan þú veifar handklæðinu," sagði hann við gamla manninn.

Aftur ákváðu þau að fara að ráðum læknisins og fór ungi maðurinn í rúmið með konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu þar til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur og aftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi. Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn. "Þarna sérðu," sagði hann sigri hrósandi. "Það er SVONA sem maður á að veifa handklæði."


| permalink |
Vélin

Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn: "mér er alveg hrikalega illt í olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis". Félaginn sagði: "ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apóteki sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig. Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara þvagsýni í vélina og hún segir þér hvað er að þér og hvað þú átt að gera í því, og það kostar bara 500 kall".

Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í apótekið. Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum blikkuðu. Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð:

Þú ert með tennisolnboga. Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um olnbogann og forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri eftir tvær vikur.

Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri og datt allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman kranavatni, hundaskít úr hundinum sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur, og til að toppa þetta runkaði hann sér í blönduna.

Daginn eftir fór hann í apótekið, hellti blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin byrjaði strax að blikka ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan út eftir farandi greiningu:

Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þinn er með orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing. Hættu svo að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum!


| permalink |

the icelandic section

links
blogs
links - web