Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes til að halda uppá það að konan hans fór frá honum.
Hann ákvað að fara í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra. Topplúgan var dregin niður og vindurinn blés í þessi þrjú hár sem enn prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.
Djö... þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens hugsaði hann og hann gaf í... þegar löggan var byrjuð að nálgast aftur gaf okkar maður aftur í.. en skyndilega tók skynsemin völdin, hann hægði á og keyrði út í vegarkantinn.
Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn:
"Þetta hefur verið langur vinnudagur" sagði löggan "ég er að ljúka vaktinni og það er föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga á yfirvinnu.
Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum ofsahraða sem þú fórst á, betri afsökun en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta sinn"
Kallinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks:
"Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni og ég varð allt í einu svo logandi hræddur um að þú værir að skila henni"
"Góða helgi" sagði löggan