Tegundir
Sölustaðir
Um galdra dúkkur
 
 


Galdradúkkurnar eru meinleysisgrey sem eru óháðar öllum trúarbrögðum og vilja engum illt. Þær minna um margt á hinar alræmdu vúdú-dúkkur en hafa samt ekkert með svartagaldur að gera.

Okkur er öllum gefin innri kraftur til að stjórna eigin lífi, ná árangri, öðlast hamingju og hvað annað sem hugann kann að girnast. Það eina sem til þarf er að einbeita sér að því sem maður þráir heitast, beisla hugarorkuna og beina henni í réttan farveg. Það er einmitt það sem Galdradúkkan hjálpar okkur að gera.

Við þurfum bara að vita hvað við viljum og festa svo hugann við það með prjóni.



galdra_dukur_uppstilling.jpg