29. apríl 2004 hafði Sigríður Pétursdóttir, starfsmaður Ríkisútvarpsins samband við mig í gegnum bloggið og bað mig að senda sér tölvupóst. Ég gerði það og í kjölfarið bauð hún mér að vera hluti að útvarpsþáttum á RUV sem myndu kallast "Sögumenn samtímans" þar sem bloggarar fengu frjálsar hendur.
Ég var rosalega hissa og ánægð og þurfti að hugsa mig um í ca þrjár sekúndur áður en ég sagði já. Fannst þetta frábært tækifæri og þannig kom það til að sumarið 2004 og 2005 fékk ég að prufa að vera dagskrárgerðamaður í útvarpi, alveg ofboðslega skemmtileg lífsreynsla sem ég mun búa að í framtíðinni.
Handritin og hljóðskrár með þáttunum