www.anna.is
Anna Helgadóttir
The things I do
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
2006 - 2007 Sérfræðingur á Viðskiptabanka- og hugbúnaðarsviði Glitnis
  • Hafði efnislega umsjón með ytri vefjum bankans.
  • Kom að markaðssetningu á vörum og þjónustu hans, bæði á netinu og utan þess.

Glitnir-logo.pngHjá Glitni var ég bæði hluti af markaðsdeild og hugbúnaðardeild, bar ábyrgð á að uppfæra vefina þeirra og halda lifandi. Ég setti inn fréttir og bjó til nýjar síður þegar þess var þörf, en ég passaði líka uppá að auglýsingabannerar væru framleiddir þegar við vorum í auglýsingaherferðum og að þeir litu vel út á síðunni. Hjá Glitni var ég að vinna með samhentum hóp fólks með mikla reynslu og ég lærði heilmikið á þessum tíma.

Vildarklúbbur Glitnis

Við Hjördís, (sem kenndi mér einna mest á meðan ég vann fyrir Glitni) og Ragnar Már, umsjónarmaður Vildarklúbbsins, unnum saman síðu fyrir þessa nýju þjónustu. Þetta var fyrsta lendingarsíðan sem ég setti upp fyrir bankann.

Seinna á árinu, á ráðstefnu hjá Ímark sem fjallaði um netið sem markaðstæki, tók Gunnar Th Sigurðsson, forstöðumaður rafrænna viðskipta hjá JÁ, þessa síðu sem gott dæmi um frábæra lendingarsíðu hjá fyrirtæki. Ég man hvað mér brá svakalega þegar hann varpaði skjámynd af síðunni uppá skjáina í salnum.

Kynning Gunnars Th Sigurðssonar

Í mínum huga er síða Vildarklúbbssins gott dæmi um frábæra samvinnu, hvað hægt er að gera þegar allir gefa verkefninu 100%, ekki síst aðilinn sem sér um vöruna sjálfa því án hans hefur vefarinn ekkert efni til að vinna með.

Skoða Vildarklúbbssíðu Glitnis

Neðst á Vildarklúbbssíðunni setti ég inn auglýsingar frá herferðinni þannig að hægt væri að spila þær á síðunni sjálfri, sem var nýjung á glitnir.is.

glitnir.is verðlaunaður

Ég var í skýjunum þegar glitnir.is var valinn besti fyrirtækjavefurinn á íslensku vefverðlaununum fyrir árið 2007. Mér finnst glitnir.is fallegur og vel hannaður vefur - og ég er stolt að hafa verið hluti vefteymis Glitnis á þessum tíma.

Umsögn dómnefndar:

"Styrkleiki vefsins felst í frábærri samþættingu á tveimur meginhlutverkum fyrirtækjavefa sem mörg fyrirtæki gætu tekið sér til fyrirmyndar. Vefurinn gegnir lykilhlutverki í markaðsetningu fyrirtæksins, auk þess að vera framúrskarandi sölu- og þjónustuvefur með gríðarlegu framboði af sjálfsafgreiðsluleiðum. Strax og vefurinn fór í loftið í núverandi mynd eftir nafnaskipti fyrirtæksins fyrir tæpum tveimur árum, vakti hann verðskuldaða athygli fyrir fagmennsku og metnaðarfulla vefþróun og hafa vefstjórendur náð að halda þeim kyndli á lofti allar götur síðan."

Uppáhalds forsíðurnar

Suma bannera gerði ég sjálf þó lang flestir kæmu frá auglýsingastofum en forsíðurnar hér að neðan eru þær sem ég er stoltust af. Á fyrri forsíðunni lagaði ég bannerinn til og breytti - í óþökk auglýsingastofunnar, en yfirmenn völdu mína útgáfu. Það var talsverður höfuðverkur að ákveða hvernig við gætum sett þennan banner saman, enda vorum við að auglýsa tvö hlaup - plús áheit og þetta þurfti - að sjálfsögðu - allt að vera MJÖG áberandi.

Hver þekkir það ekki..

Það var snillingurinn hún Hjördís sem stakk uppá flipunum neðst á bannernum sem leystu málið. Bannerinn á seinni forsíðunni vann ég úr mynd sem tekin var á degi maraþonsins af ljósmyndara Glitnis.



Ekki erfitt að gera góða hluti með svona flott myndefni!





The Things I Do

links
blogs
links - web